Innlent

Festust í Hallgrímskirkjuturni

Nokkrir ferðamenn festust í lyftunni efst í Hallgrímskirkjuturni á miðvikudag. Of margir ætluðu niður úr turninum í einu og voru tíu manns í lyftunni, sem tekur aðeins átta. Fólkinu brá nokkuð þegar lyftan stöðvaðist og hafði meðal annars kallað slökkviliðið út áður en kirkjuvörður kom lyftunni aftur í gang. Aldrei var nein hætta á ferðum og voru ferðamennirnir á bak og burt þegar slökkviliðið kom á staðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×