Einn látinn eftir aurskriður í Noregi 14. nóvember 2005 16:05 Húsið sem aurskriðan hreif með sér tættist í sundur eins og þessi mynd ber með sér. MYND/AP
Einn maður hefur fundist látinn eftir að skriða féll á hús í Aasane í Björgvin í Vestur-Noregi í dag, en þar er nú mikið úrhelli. Jafnvel er búist við að úrkomumet verði sett í dag. Maðurinn sem lést vann ásamt sex öðrum að endurbótum á húsinu þegar aurskriðan reið yfir og hrifsaði húsið með sér, en sexmenningarnir björguðust allir. Þrír þeirra komust út af sjálfsdáðum eftir að skriðan féll en björgunarsveitir björguðu þremur. Meiðsli þeirra munu ekki vera alvarleg. Þá var þremur bjargað úr öðru húsi sem varð fyrir skriðu annars staðar í Hörðalandsfylki og hafa fjölmörg hús verið rýmd vegna hættu á frekari skriðum. 50 bílar eru fastir í jarðgöngum í fylkinu eftir að skriða féll við þau en enginn mun hafa slasast þar. Björgunarmenn vinna að því að koma þeim burtu og er búist við að það taki mestan hluta dagsins. Gríðarlegt úrhelli hefur verið í Björgvin og næsta nágrenni og gera veðurfræðingar ráð fyrir allt að 200 milímetra úrkomu í dag sem yrði úrkomumet í Noregi. Auk þess eru 25-30 vegir lokaðir í Sogni og Fjörðunum, fylkinu norður af Hörðalandi, vegna skriðufalla þar í dag og ræður lögregla fólki þar um slóðir frá því að leggja í ferðalög ef það kemst hjá því. Þá hafa lestar- og rútusamgöngur milli Oslóar og Björgvinjar legið niðri út af vatnsveðrinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira