Innlent

Sólarhitinn sprengdi rúðu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk um kvöldmatarleytið í gær tilkynningu um að sprenging hefði orðið á þrettándu hæð fjölbýlishúss við Rjúpnasali í Kópavogi. Íbúar sem sátu á svölum tólftu hæðar heyrðu sprenginguna og sáu glerbrot falla til jarðar. Þeir töldu því vissara að hringja í neyðarlínuna. Allt tiltækt lið var sent á vettvang en þegar að var komið sást hins vegar enginn eldur og litlar skemmdir virtust hafa orðið, einungis rúða hafði sprungið. Svo virðist sem sólarhitinn hafi valdið sprengingunni. Enginn var heima í íbúðinni þar sem rúðan brotnaði



Fleiri fréttir

Sjá meira


×