Ótækt að stofnun skoði eigin verk 11. júní 2005 00:01
Lúðvíki Bergvinssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, finnst ótækt að Ríkisendurskoðandi rannsaki sjálfur meint vanhæfi forsætisráðherra varðandi bankasöluna. Hann segir erfitt fyrir Ríkisendurskoðanda að rannsaka eigin verk. Lúðvík segir það gera Ríkisendurskoðanda erfitt fyrir þegar hann rannsakar meint vanhæfi forsætisráðherra við sölu ríkisbankanna að þurfa að fara yfir minnisblöð sem hann hafi sjálfur skrifað um það mál. Hann segir enn fremur að Ríkisendurskoðandi hafi þegar skilað skýrslum og sett fram fullyrðingar á fundum fjárlaganefndar sem geri það að verkum að hann hafi þegar mótað sér afstöðu. Þess vegna hljóti að vera erfitt fyrir hann að fara yfir málið núna því í reynd sé hann að fara yfir fyrri álit og eigin skýrslur og það setji menn alltaf í erfiða stöðu. Aðspurður hvort einhver annar hefði átt að rannsaka málið segir Lúðvík að hann telji að það hefði komið mjög vel til álita að leita álits hjá Ríkislögmanni. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi tekur sér ekki frí um helgina. Hann hefur verið á skrifstofu sinni að fara yfir bankasöluna ásamt fleira starfsfólki embættisins. Sigurður var spurður hvenær rannsókninni lyki og hvort hún yrði kynnt á fundi fjárlaganefndar næstkomandi þriðjudag. Einu svörin sem fengust voru þau að málið væri í vinnslu og áfram yrði unnið að rannsókninni. Meira sagði hann ekki.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira