Neitun KEA veldur vonbrigðum 8. ágúst 2005 00:01 "
Samfélagið gerir auknar kröfur um samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs og vonbrigði þegar atvinnulífið fylgir ekki með," segir Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, hefur sagt starfi sínu lausu þar sem stjórn félagsins samþykkti ekki að hann tæki sér fæðingarorlof. Andri og kona hans eiga von á tvíburum en þau eiga fyrir fjögur börn. "Við höfum bundið miklar vonir við að staða kynjanna á vinnumarkaði jafnist og fæðingarorlofskerfið er liður í því," segir Margrét María. "Þessi afstaða veldur því vonbrigðum." Margrét María segist hafa orðið vör við mikinn áhuga á málinu og að margir hafi haft samband við Jafnréttistofu vegna þess. "Umræðan er af hinu góða, hún er þörf og opinberar fordóma," segir hún. Margrét María segir ekki liggja fyrir hver næstu skref Jafnréttisstofu verði. "Við eigum eftir að ræða hvað við teljum rétt að gera í stöðunni," segir hún. Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, telur að um tíu feður hafi á síðustu tólf mánuðum haft samband við félagið vegna vandræða við töku fæðingarorlofs. "Verið er að vinna í nokkrum málum þar sem mönnum var sagt upp störfum, en það er óheimilt eftir að taka fæðingarorlofs er tilkynnt," segir Gunnar Páll. Hann segir allan gang á því hvernig fyrirtæki bregðist við athugasemdum félagsins. "Oft er gengið frá sátt en nokkur mál munu væntanlega enda fyrir dómstólum." Gunnar Páll lýsir áhyggjum af stöðu mála en segist þó telja hana stafa af vanda við innleiðingu nýs fæðingarorlofskerfis. "Það tekur vinnumarkaðinn nokkur ár að átta sig á nýjum leikreglum, einkum vegna þess að nú getur liðið mun lengri tími frá fæðingu barns þangað til orlofið er tekið." Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segir sambandinu hafa borist fregnir af ýmsum vandkvæðum foreldra við að taka fæðingarorlof. Þau mál hafi hins vegar nær undantekningalaust leyst farsællega.
Fréttir Innlent Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira