Krefst milljóna króna vegna tryggingasvika 27. október 2005 03:30 Eftirlit hjá norsku tryggingastofnuninni hefur verið mjög virkt og hefur svikamálum fjölgað um sautján prósent milli ára. "
Það eru ekki einungis bótaþegar sem hafa orðið uppvísir að tryggingasvikum í gegnum tíðina heldur einnig verktakar sem eiga hlut að almannatryggingakerfinu vegna samninga Tryggingastofnunar við heilbrigðisstéttir," segir Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins. Hann segir að einstakir verktakar hafi verið krafðir um milljónir króna til baka. "Sumt af þessu kærum við en annað reynum við að leysa með lempni," segir Karl Steinar. "Ég tel mjög eðlilegt að fara í þessi mál á jákvæðum nótum. En ég er gagngert þeirrar skoðunar að svik í kerfinu komi óorði á almannatryggingar. Og það er vont mál. Mér dettur ekki í hug annað en að Íslendingar séu svipaðir í þessu og aðrar þjóðir." Karl Steinar segist ekki hafa handbærar tölur yfir mál sem komið hafa upp vegna tryggingasvika á þessu ári. Málin séu dreifð milli sviða og tekið á þeim sem slíkum þar. "Við höfum vakið athygli á því að hert hefur verið á öllu eftirliti hjá almannatryggingum á Norðurlöndum," segir hann. "Við hyggjumst gera það líka og erum að undirbúa það. En við teljum okkur ekki hafa nægilegar heimildir til að geta gengið að verki eins og við teljum þurfa." Karl Steinar segir að vitaskuld hafi eftirlit verið innan Tryggingastofnunar. "En nú er fyrirhugað að gera þetta skipulegar og setja meiri vinnu í það," segir hann. "Auðvitað hafa komið upp mál í gegnum tíðina. En við teljum að það þurfi meira til." Tryggingastofnun hefur leitað í smiðju til Norðmanna um meðferð slíkra mála. Þar í landi hefur eftirlit verið mjög virkt. Það sem af er þessu ári hefur norska tryggingastofnunin kært 244 einstaklinga fyrir tryggingasvik. Fjárhæðin sem um ræðir nemur rúmlega 300 milljónum íslenskra króna. Aldrei fyrr hafa jafn margir verið kærðir fyrir tryggingasvik í Noregi en aukningin milli ára nemur sautján prósentum. Sama máli gegnir um hin Norðurlöndin að því leytinu til að aukin vinna hefur verið lögð í að fylgjast með tryggingasvikum. Tryggingastofnun fékk á þessu ári 33 milljónir til að fara í hert eftirlit með þessum málum.
Innlent Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Umbóta þörf til að halda uppi lífsgæðum á Íslandi að mati OECD Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Vegagerðin vill hjörtun burt Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira