Útboð borgarinnar fyrirsláttur 4. maí 2005 00:01 "
Þau svör sem við höfum fengið eru að okkar mati ófullnægjandi með öllu og þessi ákvörðun því enn jafn óskiljanleg," segir Guðmundur Gestsson, framkvæmdastjóri Hvalstöðvarinnar ehf. Telur hann ótvírætt að fyrirtæki sitt hafi átt hagstæðasta tilboðið í áframhaldandi áætlunarsiglingar til Viðeyjar sem Reykjavíkurborg bauð út fyrir skömmu en tilboði sömu aðila og rekið hafa Viðeyjarferjuna undanfarin ár var tekið. Guðmundur gerir margvíslegar athugasemdir við útboðsferlið og það tilboð sem fyrir valinu varð enda var tilboð Hvalstöðvarinnar mun lægra í peningum talið auk þess sem boðið var upp á aukinn fjölda ferða. "Það er kannski eðlilegt að tilboði Viðeyjarferjunnar hafi verið tekið þar sem í liggur í augum uppi að útboðsgögnin miðuðust við þeirra starfssemi. Þannig er stærð og flutningsgeta þeirra báta sem óskað er eftir til verksins nákvæmlega sú sama og þeir hafa yfir að ráða." Hann finnur einnig að því að ekki hafi verið metin sérstaklega sú staðreynd að fyrirtæki hans stundar þegar mikið kynningarstarf meðal erlendra ferðamanna og var ætlunin að nýta þá kynningarvél til að koma Viðey á kortið. Ferðamönnum til eyjunnar hefur fækkað mikið hin síðari ár en aðeins sóttu hana heim um fimmtán þúsund manns á síðasta ári samanborið við 25 þúsund manns árið 1999. Er opinber stefna Reykjavíkurborgar að auka fjöldann aftur og því kemur það Guðmundi á óvart að slík kynningarstarfsemi sem fyrirhuguð var fengi hans fyrirtæki verkið er lítt eða ekkert metin. "Mér sýnist að útboðið hafi verið fyrirsláttur einn og aldrei hafi staðið til að skipta um þjónustuaðila." Karl Ragnarsson, hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar, var einn fjögurra fulltrúa sem fóru yfir tilboðin. Hann segir að vegna mikils umfangs hafi verið ákveðið að meta hvert tilboð á grundvelli punktakerfis í stað þess að einblína á kostnaðartölur. "Þarna spiluðu svo margir þættir inn í að annað var vart hægt. Meta þurfti styrkupphæðina, fjölda ferða, bátakost, reynslu viðkomandi og hvernig ferðatíðni kom heim og saman við þá þjónustu sem í eynni er. Tilboð Viðeyjarferða þótti vænlegast að okkar mati en þar með er ekki sagt að þeir hafi staðið sig mjög vel á öllum sviðum."
Fréttir Innlent Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira