Deilt um fyrstu drög stjórnarskrár 10. ágúst 2005 00:01
Tíminn hleypur frá þeim sem vinna að stjórnarskrá Íraks. Enn er deilt um fyrstu drög sem skila á von bráðar, en samkvæmt þeim verður íslamskur réttur grundvöllur ríkisins. Fátt gott hefur heyrst af lífi Íraka á tímum Saddams Husseins en eitt er þó ljóst: staða kvenna þar var mun betri en í hinum íslamska heimi. Það gæti nú breyst miðað við þau drög að stjórnarskrá sem írakska dagblaðið As-Sabah birti fyrir nokkrum dögum. Þar er jafnrétti tryggt svo fremi að það stangist ekki á við Sharia-lög. Sharia-lög byggjast á kóraninum og er talið að þetta þýði í raun gjörbreytta stöðu kvenna í íröksku samfélagi. Nokkur hundruð karlar og konur mótmæltu þessu fyrir skömmu en afleiðingarnar gætu verið víðtækar. Lögleiða á fjölkvæni á ný og trúardómstólar skera úr deilumálum sem snerta erfðir, fjölskyldurétt og hjónabönd. Þeir gætu komist að þeirri niðurstöðu samþykki fjölskyldunnar þyrfti áður en kona gæti gengið að eiga karl. Fréttamaður Spiegel segir fjölmarga sjíta sem vinna að stjórnarskránni horfa til Teheran og trúarríkisins Írans þar sem klerkar hafa lokaorðið um velflest í þjóðlífinu. Formaður trúarfrelsisráðs Bandaríkjanna segir stjórnarskránna hefta trúfrelsi verulega. Enn er þó aðeins um drög að ræða og um þau er deilt enda bæði súnnítar og Kúrdar fullir efasemda og krefjast í raun aðskilnaðar sem gæti lokið með klofningu Íraks. Salama al-Khafaji, þingmaður á írakska þinginu, segir að flest ákvæði stjórnarskrárinnar séu ásættanleg en ágreiningur sé um nokkur. Það þurfi að ræða þau frekar og leggja meiri vinnu í þau. Að því vinni þingmenn hörðum höndum og þegar upp verði staðið verði stjórnarskráin samþykkt af hálfu allra ríkja innan Íraks. Lokadrögin eiga að liggja fyrir næsta mánudag.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira