Rjúfa innsigli á kjarnorkuveri 10. ágúst 2005 00:01
Íranar hafa rofið innsigli á kjarnorkuveri þar sem þeir geta auðgað úran sem nota má til vopnaframleiðslu. Mikil spenna hefur myndast vegna málsins og standa yfir neyðarfundir hjá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni. Meðal þeirra úrræða sem Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur er að vísa málinu til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem gæti sett viðskiptabann á Íran. Þó að ólíklegt þyki að það verði gert þegar í stað er ljóst að vísun til Öryggisráðsins myndi ekki draga úr spennunni. Íranar segja nauðsynlegt að hefja vinnslu í kjarnorkuveri við bæinn Isfahan til að framleiða raforku en lengi hefur leikið grunur á að í raun fari fram ólöglegur undirbúningur að smíði kjarnavopna. Íranar hafa farið mjög leynt með kjarnorkuáætlun sína sem hefur enn frekar aukið á grunsemdir um að áætlanir þeirra samrýmdust ekki alþjóðalögum. Uppljóstrarar hafa greint frá því að Íranar eigi nú þegar nægt hráefni til að geta innan skamms búið til töluvert magn slíkra vopna. Aðrir sérfræðingar telja í það minnsta áratug þurfa til að Íranar búi yfir nægilegri kunnáttu og hráefni. Engu að síður vekja aðgerðir þeirra enga hrifningu hjá alþjóðasamfélaginu. Evrópubandalagið með Þjóðverja, Frakka og Breta í broddi fylkingar hefur reynt að semja við Írana og bjóða þeim ívilnanir en nýjasta tilboði hópsins vísuðu Íranar frá á laugardaginn var með þeim orðum að það væri móðgun við írönsku þjóðina. Nýkjörinn forseti landsins, harðlínumaðurinn Mahmoud Ahmedinejad, ritaði þó Kofi Annan bréf í gær og kvaðst þar hafa nýjar hugmyndir fram að færa. Orð hans hafa vekið grun um að hugsanlega reyni Íranar með þessum hætti að fjárkúga Vesturlönd og vilji fá mikið meira fyrir að hætta við kjarnorkuáætlun sína en Evrópusambandsþjóðirnar buðu.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira