Svartsýni er ríkjandi fyrir ráðherrafundinn 13. desember 2005 06:00 Hnattvæðingu andæft. Strax í fyrradag hafði verið efnt til mótmæla í Hong Kong. Mótmælendurnir segja viðræður WTO fara fram á forsendum ríku þjóðanna og stórfyrirtækja.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit virðast Vesturlönd ekki ætla að greiða fyrir útflutningi þróunarlanda með því að draga úr niðurgreiðslum á sinni eigin framleiðslu. Því er lítil von til að árangur í þá átt náist á ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO sem hefst í Hong Kong í dag. Sendinefndir 149 aðildarríkja WTO eru samankomnar í Hong Kong en þar var ætlunin að leiða til lykta svokallaða Doha-samningalotu stofnunarinnar sem hófst í höfuðborg Katar fyrir fjórum árum og átti meðal annars að stórbæta aðgang þróunarlanda að mörkuðum á Vesturlöndum fyrir afurðir sínar. Fátækari þjóðir hafa einkum barist fyrir að Bandaríkin, Evrópusambandið og Japan hætti að niðurgreiða framleiðslu sína á ýmsum vörum, sérstaklega landbúnaðarafurðum, en þær nema tuttugu þúsund milljörðum króna á ári, 24-faldri árlegri þjóðarframleiðslu Íslendinga. Peter Mandelson, yfirmaður viðskiptamála í framkvæmdastjórn ESB, lét þau orð hins vegar falla í gær að árangur af viðræðum væri "ekki mögulegur" nema þróunarlöndin afnæmu sjálf tollamúra sína fyrir framleiðslu annarra ríkja. Celso Amorim, utanríkisráðherra Brasilíu, sagði því á blaðamannafundi í Hong Kong að einungis kraftaverk dygði til að samkomulag næðist. Að sögn breska blaðsins Independent hafði Mandelson sjálfur reyndar ljáð máls á að draga úr niðurgreiðslum ESB en frönsk stjórnvöld brugðust þá ókvæða við og sögðu hann ekkert umboð hafa til slíks. Í sárabætur hyggjast ESB og nokkur önnur ríki bjóða 32 fátækustu aðildarríkjum WTO tollfrjálsan aðgang að mörkuðum sínum. Fulltrúar nokkurra af stærstu viðskiptablokkum heims notuðu jafnframt tækifærið í gær og hittust á leynilegum fundum og skeggræddu viðskipti sín á milli. Að venju er búist við kröftugum mótmælum vegna WTO-fundarins en rúmur tugur þúsunda andstæðinga hnattvæðingar hyggst láta til sín taka á götum Hong Kong á meðan hann fer fram. Þar á meðal er stór hópur frá Suður-Kóreu sem þekktur er fyrir róttækar baráttuaðferðir, meðal annars sjálfsmorð, til að vekja athygli á málstað sínum. Því viðhefur lögregla í Hong Kong mikinn viðbúnað þessa dagana.
Erlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira