Fengu ekki að hitta alla fanga 10. desember 2005 06:30 Jakob Kellenberger forseti Alþjóða Rauða krossins á blaðamannafundi í Genf í gær.
Háttsettur embættismaður í bandaríska utanríkisráðuneytinu hefur staðfest að fulltrúum Rauða krossins hafi ekki verið veittur aðgangur að öllum þeim föngum sem eru í haldi Bandaríkjamanna, grunaðir um aðild að hryðjuverkum. Frá þessu greindi forseti Alþjóða Rauða krossins (ICRC) í gær. John B. Bellinger III, lögfræðiráðgjafi utanríkisráðuneytisins í Washington, var spurður að því í höfuðstöðvum Rauða krossins í Genf hvort fulltrúar samtakanna hefðu fengið að vitja allra slíkra fanga sem væru í haldi Bandaríkjamanna. Bellinger svaraði því neitandi en neitaði að skýra svar sitt nánar. Jakob Kellenberger, forseti Alþjóða Rauða krossins, sagði að hann hefði í meira en tvö ár þrýst á háttsetta fulltrúa Bandaríkjastjórnar að ganga úr skugga um að fulltrúar samtakanna fengju aðgang að öllum þeim stöðum þar sem Bandaríkjamenn héldu meintum hryðjverkamönnum föngnum. Meðal skilgreindra verkefna ICRC samkvæmt Genfarsáttmálunum er að hafa eftirlit með því hvaða meðferð stríðsfangar sæta. "Við höldum áfram viðræðum við þá um að fá aðgang að öllum þeim sem handteknir hafa verið í nafni hins svokallaða stríðs gegn hryðjuverkum, án landfræðilegra takmarkana," sagði Kellenberger.
Erlent Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Innlent Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Innlent Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Innlent Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Innlent Fleiri fréttir Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Sjá meira