Dáist að einurð Íraka 10. desember 2005 09:30 Héraðsstjórnin í Najaf . Þegar Kosnett var héraðsstjóri í Najaf sá hann meðal annars um að bráðabirgðahéraðsstjórn var valin sem í áttu sæti íraskir stjórnmálamenn.
Í janúar kusu Írakar stjórnlagaþing sem síðan skipaði ríkisstjórn, í október greiddu þeir atkvæði um drög að nýrri stjórnarskrá landsins og næstkomandi fimmtudag ganga þeir í þriðja sinn að kjörborðinu á tæpu ári þegar þeir kjósa nýja menn á þing samkvæmt ákvæðum nýju stjórnarskrárinnar. Philip S. Kosnett, staðgengill sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, er einn þeirra sem fylgjast óvenju grannt með framvindu mála í Írak. Áhuginn er skiljanlegur því áður en hann kom hingað til lands var hann héraðsstjóri í Najaf-héraði. Þar hafði hann yfirumsjón með stjórnmála- og efnahagsuppbyggingu svæðisins auk þess að vinna með hermönnum innrásarliðsins að uppbyggingu íraskra öryggissveita áður en Írakar fengu fullveldi sitt á nýjan leik í maílok 2004.Í hringiðu uppreisnar@Mynd -FoMed 6,5p CP:Á skrifstofunni Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur undirstrikað við reynum ekki að hafa áhrif á þróun mála á stjórnmálasviðinu í Írak, við viljum fyrst og fremst að lögmæt og réttkjörin ríkisstjórn komist til valda.fréttablaðið/hariKosnett hafði ekki verið lengi í Najaf þegar uppreisn eldklerksins Muqtada al-Sadr hófst í borginni og eins og búast má við gerbreytti hún verkefnum héraðsstjórans þann rúma mánuð sem hún stóð yfir. Sadr vonaðist til að úr yrði allsherjarbylting milljóna sjía sem myndu hrekja heiðingjana á brott úr landinu. Ekkert í líkingu við það gerðist, aðeins nokkur þúsund manns gengu til liðs við hann. Hersveitir bandalagsþjóðanna lögðu til atlögu við þennan her Sadr en jafnfram reyndum við að sannfæra hann um að berjast frekar fyrir sínum málum á stjórnmálasviðinu en með ofbeldi. Nokkrum mánuðum síðar bar sú vinna árangur. Nú eru menn handgengnir Sadr í framboði í kosningunum í næstu viku og við erum auðvitað mjög ánægð með það. Kosnett segir að mikilvægan lærdóm megi draga af atburðunum í Najaf og atburðarásin síðan þá sýni að jákvæðar breytingar hafi orðið í landinu. Herflokkur Sadr samanstóð að langstærstum hluta af ungum ómenntuðum sjíum sem hafði verið innrætt að írösk stjórnvöld og erlendir bandamenn þeirra væru óvinirnir og gegn þeim ætti að rísa til að verja landið og trúna. Sú staðreynd að Sadr vinnur nú að sínum málum á vettvangi stjórnmálanna sýnir að framfarir hafi átt sér stað. Þær eru ekki síst íröskum stjórnmálamönnum að þakka sem hafa sýnt ungum Írökum að það er framtíð þrátt fyrir allt og fyrir henni er til betri leið til að berjast en ofbeldi. Ég held að á sama hátt eigi að vera mögulegt að snúa óánægðum súnníum, sem barist hafa gegn hernámsliðinu og lögmætum íröskum yfirvöldum, til jákvæðari verka. Vonast eftir góðri kjörsókn@Mynd -FoMed 6,5p CP:Saddam fer mikinn Þrátt fyrir uppnámið sem réttarhöldin hafa valdið innanlands og utan telur Kosnett ólíklegt að þau hafi áhrif á kosningarnar á fimmtudaginn. fréttablaðið/APTalsverð spenna ríkir fyrir kosningarnar á fimmtudaginn enda eru yfir tvö hundruð stjórnmálaflokkar og hreyfingar í framboði. Í kosningunum í janúar vegnaði hófsömum sjíum mjög vel og höfðu þeir ásamt fulltrúum Kúrda mest að segja um stjórnarskrárgerðina og stjórn landsins. Búist er við að valdahlutföllin muni breytast nokkuð því súnníar, sem sniðgengu kosningarnar í janúar, er taldir ætla að flykkjast nú á kjörstað til að tryggja að þeir verði ekki aftur settir til hliðar. Sjíar og Kúrdar munu aftur á móti reyna að halda þeim völdum sem þeir hafa í dag og því spáir Kosnett að kjörsókn eigi almennt eftir að verða góð, þrátt fyrir hið ótrygga ástand sem ríkir í landinu. Mér finnst eiginlega ótrúlegt að milljónir Íraka skuli bókstaflega hætta lífi sínu við að mæta á kjörstað. Ef ég byggist við að verða fyrir eldflaugaárás á leiðinni á minn kjörstað í Norður-Karólínu myndi ég sennilega hugsa mig tvisvar um. Þegar greidd voru atkvæði um stjórnarskrána í október fjölmenntu súnníar reyndar á kjörstað og telur Kosnett þá staðreynd merki um að þjóðareining Íraka sé mun meiri en oft sé látið í veðri vaka. Á sama tíma held ég að leiðtogar sjía og Kúrda skilji alltaf betur og betur að þeir verði að tryggja að súnníarnir séu ekki settir til hliðar og að eining landsins sé forsenda þess að friður og farsæld komist á. Réttkjörin ríkisstjórn aðalatriðiðEnda þótt Kosnett vilji engu spá um úrslit kosninganna má gera ráð fyrir að sameinuðu framboði sjía muni vegna aftur vel. Stærstur hluti írösku þjóðarinnar er sjíamúslimar og andlegur leiðtogi þessa hóps, Ali al-Sistani erkiklerkur, hefur látið stuðning sinn við framboðið í ljós. Verði þetta lyktir kosningana grunar marga að Íranar, sem einnig eru upp til hópa sjíar, muni reyna að seilast til frekari áhrifa í landinu en af því kveðst Kosnett hafa litlar áhyggjur. Ég held að enginn þurfi að undrast að Íranar fylgist grannt með þróun mála í Írak enda eiga þeir þar hagsmuna að gæta. Við erum hins vegar nokkuð bjartsýn á að Íranar beiti sér frekar á uppbyggjandi hátt í Írak. Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur undirstrikað við reynum ekki að hafa áhrif á þróun mála á stjórnmálasviðinu í Írak, við viljum fyrst og fremst að lögmæt og réttkjörin ríkisstjórn komist til valda, ekki stjórn sem þorri Íraka telur að gæti hagsmuna einhverra annarra en þeirra sjálfra. Réttað yfir SaddamÁ sama tíma og þjóðin býr sig undir kosningarnar standa réttarhöldin yfir Saddam Hussein og samstarfsmönnum hans yfir. Að vonum hafa málaferlin vakið mikla athygli. Mannréttindasamtök víða um heim hafa borið brigður á lögmæti þeirra og ólgan sem ríkir í Írak þessa dagana helgast að talsverðu leyti af því róti sem réttarhöldin vekja. Réttarhöldin eru fyrst og fremst mál Írakanna sjálfra, dómarar, saksóknarar og verjendur eru allir Írakar. Þeir ákváðu hvenær réttarhöldin færu fram og ég held að tímasetningin orki ekki tvímælis í ljósi þess að allur þorri Íraka vill sjá réttað yfir Saddam vegna glæpa hans í opnum og sanngjörnum réttarhöldum, sem ég held að þau sannarlega séu. Því held ég að réttarhöldin muni hafa lítil áhrif á kosningarnar. Uppreisnin er vandamálÞótt réttarhöldin yfir Saddam hafi ef til vill lítil áhrif á kosningarnar er öruggt að vargöldin í landinu setur strik í reikninginn. Daglega berast nýjar fréttir af átökum og árásum í Írak og Kosnett viðurkennir að enn sé mikið verk óunnið við að koma friði á. Hann bendir hins vegar á að með markvissum aðgerðum eigi að vera hægt að draga mjög úr óánægjunni sem er drifkrafturinn á bak við uppreisnina. Almennt er litið svo á að skipta megi uppreisnarhópum landsins í þrennt. Í fyrsta lagi eru alþjóðlegir hryðjuverkamenn sem sagðir eru hafa tengsl við al-Kaída. Þessir menn sprengja upp moskur og víla ekki fyrir sér að myrða saklausa borgara í þeirri von að ótti og ringulreið grípi um sig. Þeirra markmið er að reyna að koma af stað borgarastríði á milli sjía og súnnía, segir Kosnett. Í öðru lagi eru leifarnar af Baath-flokknum og öryggissveitum Saddams sem eru óánægðar með sinn hag. Kosnett segir þessi öfl hafa farið huldu höfði undanfarið og safnað kröftum en líkur séu á að þau láti til skarar skríða í kringum kosningarnar. Í þriðja lagi eru svo ungir, ómenntaðir og atvinnulausir menn sem í vonleysi sínu finna óánægju sinni farveg í andspyrnu við stjórnvöld. Ég held að allar líkur séu á að með markvissum aðgerðum lögreglu og pólitískum þrýstingi íraskra stjórnmálamanna muni draga mjög úr andófi þessa hóps. Auðvitað vilja ungir súnníar bara það sama og aðrir, þeir vilja fyrst og fremst frið og tækifæri til að fá að byggja upp framtíð sína. Flestir Írakar eru að verða langþreyttir á hryðjuverkum. Eftir því sem íraskar hersveitir styrkjast og herir bandalagsþjóðanna taka minni beinan þátt í hernaðaraðgerðum veikist enn frekar málflutningur þeirra sem segja Írak vera hernumið. Takmarkið er svo auðvitað að Írak geti staðið á eigin fótum, bæði í stjórnmálalegu og efnahagslegu tilliti. Þrýstingurinn vex stöðugt í þeim ríkjum sem halda úti herliði í Írak að kalla það sem fyrst heim. Forseti Bandaríkjanna hefur stöðugt hamrað á því að við verðum í Írak svo lengi sem okkar er þar þörf, en ekki degi lengur, segir Kosnett. Framkvæmd og lyktir kosninganna á fimmtudaginn munu ráða miklu um hvenær sá dagur rennur upp.
Erlent Mest lesið Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út Innlent „Ástandið er að versna“ Erlent „Þetta er salami-leiðin“ Innlent Fækkar herforingjum um fimmtung Erlent Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Innlent Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Erlent Gunnlaugur Claessen er látinn Innlent Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna Erlent Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Innlent Ekki standi til að sækja strandveiðiheimildir í aflamarkskerfið Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ PAP vann stórsigur í Singapúr Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Verkamannaflokkurinn bar sigur úr býtum Íbúar Nuuk orðnir tuttugu þúsund Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Umsetin af krókódílum í 36 klukkutíma eftir nauðlendingu Birti mynd af sér í páfaskrúða Sögulegur sigur Umbótaflokks og skipbrot stóru flokkanna tveggja Sjá meira