Ríkið sýnir olíufélögunum linkind 26. nóvember 2005 06:00 Árni Mathiesen fjármálaráðherra. Niðurstaða athugana liggur fyrir innan tíðar.
Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir að verið sé að kanna það af hálfu fjármálaráðuneytisins hvort grundvöllur sé til þess að höfða mál gegn olíufélögunum sem uppvís urðu að verðsamráði. Í upphafi þingfundar í gær kvaddi Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sér hljóðs um störf þingsins og spurði hvernig fjármálaráðherra hefði gætt hagsmuna almennings í þessu máli. "Að minnsta kosti í sex tilvikum, það er varðar dómsmálaráðuneytið, Landsímann, Íslandspóst, Lögregluna í Borgarnesi, Landhelgisgæsluna og Vegagerðina er ljóst að verðsamráð olíufélaganna olli ríkinu miklu tjóni. Og sennilega nemur það tugum ef ekki hundruðum milljóna króna," sagði Lúðvík. Hann bætti við að ekkert hefði gerst og ekkert spurst til málsins í níu mánuði eða frá því spurt var um málið í febrúar síðastliðnum. Lúðvík sagði að brotin væru meira og minna játuð og staðfest og Reykjavíkurborg hefur gert kröfur fyrir sitt leyti. Árni Mathiesen fjármálaráðherra sagði að málið væri langt komið innan ráðuneyta og stofnana sem málið varðaði. "Þegar þær niðurstöður eru allar komnar í hús er kominn grundvöllur til þess að taka afstöðu til málsins í heild og ákvarða hvort efni standa til þess að höfða mál," sagði Árni. Hann vildi ekki dagsetja hvenær niðurstöður bærust. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að almenningur ætti kröfu á að fá svör frá stjórnvöldum og ráðherrum. "Ef þeir eru svo miklir vinir þeirra sem hlut eiga að máli hinum megin að þeir þora ekki í þá, þá eiga þeir að hætta hagsmunavörslu sinni fyrir almenning og fara að gera eitthvað annað. "Og þessi maður (fjármálaráðherra) og forveri hans og félagar eru sérstaklega kjörnir til þess að gæta hagsmuna almennings á Íslandi gegn svikurum, gegn svindlurum og gegn pakki sem fer þannig með peninga fólksins að það ætti að vera fyrir löngu búið að koma þeim fyrir á ónefndum stað." Fjármálaráðherra þótti stjórnarandstæðingar tala djarflega og spurði að endingu hvort þeir vildu ekki að stjórnvöld vönduðu til verka eins og þeir gerðu ávallt kröfu um í öllum málum.
Innlent Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira