Fjármagna kaupin með kvóta 19. nóvember 2005 03:30 Samherji
Sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf. á Akureyri hefur á tveimur árum selt frá sér liðlega sex þúsund þorskígildistonn. Á sama tímabili leigðu Brim og Samherji hf. frá Akureyri samtals um 16 þúsund þorskígildistonn. Þar af leigði Samherji frá sér tæplega 10 þúsund en Brim rúmlega 6 þúsund þorskígildistonn. Stórtækust í kvótaútleigu auk Samherja og Brims eru Vinnslustöðin, HB Grandi og Skinney- Þinganes, en öll leigðu þau frá sér meira en þrjú þúsund þorskígildistonn á tímabilinu. Þetta kemur fram í skriflegu svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem lagt var fram fyrir helgina. "Það er ljóst að sala aflaheimilda og leiga er að aukast og verðið hefur hækkað líka. Stóru tölurnar frá Akureyri vekja athygli mína. Þaðan hefur Brim endanlega selt sex þúsund tonn. Aflaheimildir sem nema um 22 þúsund þorskígildistonnum eru að minnsta kosti ekki nýttar á Akureyri," segir Jóhann. "Það er nauðsynlegt að vita á hvaða hreyfingu aflaheimildirnar eru. Mönnum tekst með þessum braskaðferðum að halda uppi mjög háu verðlagi á aflaheimildum, bæði í sölu og leigu þeirra. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefur til að mynda borið uppi sinn rekstur með því að leigja frá sér aflaheimildir á þessu verði. Ég tel einnig greinilegt að eigendur Brims eru að selja og leigja frá sér kvóta til að fjármagna kaupin á fyrirtækinu," segir Jóhann Ársælsson. "Við lítum á Ísland sem eina verstöð. Það breytir ekki öllu fyrir okkur hvar skipin eru skráð. Það er ekki hægt fyrir útgerðarfyrirtæki að halda úti byggðastefnu. Samherji geymir til dæmis kvóta á Háberginu sem er skráð í Grindavík," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims.
Innlent Mest lesið Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Innlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Erlent „Brotamenn eru nú ekki oft miklir borgunarmenn“ Innlent Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Erlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Heimila gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisþjónustu og útkalls án flutnings Innlent Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Erlent Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Erlent Fleiri fréttir Sveitarstjóri Mýrdalshrepp vill verða ritari Frelsisflotinn stöðvaður og árás á bænahús gyðinga í Manchester Styttist í lok rannsóknar Rúmlega þrjátíu skjálftar á Vesturlandi „Brotamenn eru nú ekki oft miklir borgunarmenn“ Heimila gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisþjónustu og útkalls án flutnings Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Atvinnuþátttaka innflytjenda meiri en Íslendinga en fjárhagsstaða verri Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Framsóknarflokkurinn mælist aftur inni Áttatíu starfsmenn í biðstöðu og HM-hópur Íslands Viðreisn býður fram undir eigin merkjum í Árborg Ekið á hjólreiðamann og hann fluttur á bráðamóttöku Val á þingflokksformanni bíður betri tíma Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Sjá meira