Innlent

Friðhelgin ítrekað rofin

Ólína Þorvarðardóttir skólameistari segir friðhelgi skólans ítrekað rofna og krefur Ingibjörgu um skýringar á ummælum sínum í fjölmiðlum og hvers vegna hún starfaði utan skólans í veikindaforföllum.
Ólína Þorvarðardóttir skólameistari segir friðhelgi skólans ítrekað rofna og krefur Ingibjörgu um skýringar á ummælum sínum í fjölmiðlum og hvers vegna hún starfaði utan skólans í veikindaforföllum.

"Það er ítrekað verið að rjúfa friðhelgi þessa skóla. Það er ekki starfandi við þessi skilyrði og þessi skóli á ekki skilið þessa meðhöndlun," segir Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Mennta­skólans á Ísafirði. Ingibjörg Ingadóttir, kennari við Menntaskólann á Ísafirði, var boðuð í viðtal með stjórnendum skólans á þriðjudag. Ólína Þorvarðardóttir skólameistari boðaði til viðtalsins. Viðstödd voru þau Björn Jóhannesson, lögmaður á Ísafirði, Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara og Ragnar Hall, lögmaður félagsins.

Samkvæmt heimildum blaðsins urðu niðurstöður fundarins engar. Enn er beðið eftir niðurstöðum úr athugun menntamálaráðuneytis á störfum við skólann. "Manni þykir það heldur undar­legt að efnt skuli til fundar af þessu tagi á meðan beðið er eftir niðurstöðum frá menntamálaráðuneytinu," segir Ragnar Hall. "Starfshættir skólameistarans hafa sætt aðfinnslum af hálfu Félags framhaldsskólakennara og ýmissa kennara við skólann," segir Ragnar einnig.

Hann vill ekki reifa það sem fram fór á fundinum og segir það trúnaðarmál að svo stöddu. Hann segir að hópur sem menntamálaráðu­neytið skipaði til þess að gera úttekt á málum menntaskólans hafi ekki skilað sinni úttekt, en býst við að það geti orðið á allra næstu dögum. Í viðtalsboðuninni óskar Ólína eftir því að Ingibjörg útskýri hvernig á því standi að hún sinnti störfum utan skólans í veikindaforföllum. Einnig óskast það útskýrt hví umrædd forföll voru fyrst tilkynnt í héraðsblaðinu Bæjarins besta, þann 23. september síðastliðinn en ekki tilkynnt skólanum fyrr en með bréfi dagsettu 27. september.

Aðalheiður Steingrímsdóttir segir að Félag framhaldsskólakennara kjósi að tjá sig ekki um málið að svo stöddu. Ingibjörg Ingadóttir kennari vildi heldur ekki segja neitt um hvað fram fór í viðtalinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×