Foreldrar koma að rekstri Kópavogsskóla 11. nóvember 2005 05:45 Ármann Kr. Ólafsson við Kópavogsskóla. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldraráðinu verði heimilt að fá einkaaðila til að styrkja skólastarfið. "
Þetta þýðir að við erum að færa mun meira vald til foreldra en nokkurn tíma áður og vonumst með því til að auka skilvirkni og fjölbreytileika innan hans," segir Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs. Samþykkt voru á bæjarstjórnarfundi í fyrrakvöld drög að samningi við Kópavogsskóla um stóraukin áhrif foreldraráðs skólans á stjórn hans til næstu tveggja ára í tilraunaskyni. Ármann segir að samningur þessi byggist á þrennu. "Í fyrsta lagi að auka sjálfstæði skóla en það er nokkuð sem margir hafa talað um en aldrei raunverulega komist í framkvæmd með almennilegum hætti. Með þessum hætti er tryggt að svo verður. Í öðru lagi auka valddreifingu innan skólans og síðast en ekki síst þýðir þetta aukið íbúalýðræði því öllum foreldraráðinu gefst kostur á að vera með puttana í öllum helstu ákvarðanatökum innan veggja skólans." Tilraunin gengur út á að foreldraráð sem kosið verði á opnum fundi fái víðtæk völd en verði ekki aðeins umsagnaraðili eins og venja er meðal slíkra ráða. Foreldraráð Kópavogsskóla verður þá beinn þátttakandi í að leggja línurnar ásamt forráðamönnum skólans og mun hafa áhrif meðal annars á ráðstöfunarfé hans og taka beinan þátt í ráðningu nýs skólastjóra þegar og ef til þess kemur. Enn fremur verður foreldraráðinu heimilt að fá einkaaðila til að styrkja skólastarfið og verður þannig heimilt að stofna sérstakan sjóð þess vegna. Að síðustu munu foreldrar sem í ráðinu verða fá sérstaka þóknun fyrir störf sín. Ármann segir að vilji hafi verið fyrir því að ganga lengra með að auka sjálfstæði skóla í þeirri von að enn betri nýting fáist á það fjármagn sem skólanum er ætlað. "Með þessum hætti fer fé frekar í þau verkefni sem eru foreldrunum þóknanleg og veitir um leið aðhald um nýtingu fjármunanna." Samningurinn mun formlega taka gildi frá og með næstu áramótum.
Innlent Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Fleiri fréttir Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Sjá meira