Best að aka á jöfnum hraða 10. nóvember 2005 05:00
Mörg ráð eru til að spara bensín. Sum ráðin fara ekki einungis vel með fjárhaginn, heldur eru einnig betri fyrir umhverfið og spara mengun. Til að spara bensínið er best að aka með jöfnum hraða. Best er að halda sig við hámarkshraða, þar sem hraðatakmarkanir eru miðaðar við eðli götunnar og því er best að fara bara eftir þeim. Í innanbæjarakstri miðast stillingar umferðarljósa við hraðatakmarkanir og með því að aka á jöfnum hraða er því hægt að aka alltaf inn á gatnamót á grænu ljósi. Með því að aka varlega sparast einnig bensín. Skyndileg hröðun og snögg stopp auka eyðsluna. Með því að þurfa alltaf að taka aftur af stað eftir að hafa stoppað á rauðu ljósi eykur því bensíneyðslu. Þá er ágætt að velja réttan tíma til að skutlast um bæinn í ýmsum útréttingum. Á háannatíma er oft mikil umferð sem krefst þess að ökumaður stoppi oft. Með því að sinna mörgum erindum í sömu ferðinni er einnig hægt að eyða minna af bensíni en með því að vera oft að skjótast. Þegar verið er að skjótast inn í búð eða með börnin á leikskóla er best að drepa á bílnum og hafa hann ekki í lausagangi. Með þessu sparnaðarráði er líka komið í veg fyrir að andrúmsloftið sé mengað fyrir öðrum gangandi vegfarendum. Léttari bílar eru auðveldari í akstri og eyða minna. Því er gott að fjarlægja óþarfa hluti úr bílnum. Bílar með opna glugga krefjast aukinnar bensínnotkunnar. Því er betra að skrúfa ekki niður rúðuna og setja frekar loftkælinguna á. Reglulegt viðhald á bílnum getur verið orkusparandi. Loftlaus dekk og illa stillt reyna meira á vélina og því eyðir bíllinn meira bensíni. Bilaðar vélar og illa stilltar geta einnig eytt meira bensíni en nauðsyn krefur. Því er gott að halda vélinni við og skipta um allt þegar á að skipta. Að lokum er gott að hafa í huga að mikið bensín getur farið í margar mjög stuttar bílferðir. Því er oft betra að velta því fyrir sér hvort bíllinn sé nauðsynlegur eða hvort hægt sé að ganga í staðinn, sem er bæði hressandi og góð líkamsrækt í senn.
Innlent Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Fleiri fréttir Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Sjá meira