Hótaði að bana barnsmóður sinni 10. nóvember 2005 04:00 Maðurinn réðst á lögreglu með hnífi og hótaði barnsmóður sinni lífláti.
Tæplega fertugur karlmaður var dæmdur til eins og hálfs árs fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag. Ákæruefni er hótanir, meðal annars í garð barnsmóður, líkamsárás á lögregluþjón og eignaspjöll. Landssamband lögreglumanna sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem harmað er hversu væga refsingu héraðsdómur hefði ákveðið. Lögreglumenn telja að með þessum dómi fái brotamenn þau skilaboð að ekki teljist alvarlegt að ráðast á lögreglumenn. Landssambandið telur einsýnt að með þessu sé bæði öryggi lögreglumanna og almennings stefnt í hættu. Þetta þykir lögreglumönnum vera ólíðandi ástand. Maðurinn hafði hótað barnsmóður sinni lífláti með textaskilaboðum. "Hæ, ef þú leyfir mér ekki að sjá börnin aftur þá skal ég skjóta þig í hausinn, 2. eða 3. desember og þá ertu dauð og ég líka og þá eiga börnin ekki pabba eða mömmu bæ bæ," sagði í skilaboðunum. Einnig bar hann bréf í hús í Reykjavík þar sem hann hótar enn lífláti. "Ef hún hringir ekki í mig næsta föstudag þá ert þú dauður. Ég á kúbein og klippur og haglabyssu og ég nota þetta næstu helgi ef hún hringir ekki í mig næsta föstudag," stóð í einu bréfanna. Við handtöku í júní lagði hann svo til lögreglumanns með hnífi, tvívegis í nárann. Í dóminum segir að með þessari háttsemi hafi maðurinn stofnað lífi lögreglumannanna í hættu á augljósan og ófyrirleitinn hátt og tilviljun hafi ráðið að ekki hlutust alvarlagir áverkar af. Maðurinn hefur átt við geðhvarfa- og áfengissýki að stríða en þegar litið var til vottorða frá læknum þótti dóminum ástæða til að ætla að hann væri sakhæfur og telur geðlæknir að hann geri greinarmun á réttu og röngu. Í dómnum er litið til þess að í lögum sé gert ráð fyrir að fangelsisyfirvöldum sé heimilt að vista fanga á sjúkrastofnun ef þurfa þyki enda eigi fangar rétt á að njóta viðeigandi heilbrigðisþjónustu.
Innlent Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Fleiri fréttir Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Sjá meira