Innlent

Staða rækju sem hamfarir

Rækjuvinnsla Íshafs. Um 90 manns hefur verið sagt upp störfum að undanförnu í fjórum rækjuverksmiðjum og hefur sjávarútvegsráðherra skipað starfshóp til að kanna stöðu og horfur í rækjuiðnaði á Íslandi.
Rækjuvinnsla Íshafs. Um 90 manns hefur verið sagt upp störfum að undanförnu í fjórum rækjuverksmiðjum og hefur sjávarútvegsráðherra skipað starfshóp til að kanna stöðu og horfur í rækjuiðnaði á Íslandi.

Sjávarútvegsráðherra hefur stofnað starfshóp til að kanna stöðu og horfur í rækjuiðnaði á Íslandi og er honum ætlað að skila niðurstöðum fyrir miðjan desember. Útlit er fyrir að einungis átta rækjuverksmiðjur verði starfandi um næstu áramót en fyrir rúmu ári voru 14 rækjuverksmiðjur starfræktar hér á landi. Fyrir tveimur árum voru rækjuverksmiðjurnar sextán og nítján fyrir tíu árum.

Rekstrarumhverfi í rækjuiðnaði hefur versnað til muna á undanförnum misserum. Vandann má rekja til gengi íslensku krónunnar, lágs afurðaverðs, hátt hráefnisverð á iðnaðarrækju, sölutregðu og aflabresta á Íslandsmiðum samhliða mjög háu olíuverði.

@Mynd -FoMed 6,5p CP:kristján Möller

Rækjuiðnaðurinn varð fyrir áfalli í október síðastliðnum en þá var öllum 23 starfsmönnum rækjuvinnslu Íshafs á Húsavík sagt upp störfum og koma uppsagnirnar til framkvæmda um áramót.

Á sama tíma var 25 manns sagt upp störfum hjá Sigurði Ágústssyni ehf. í Stykkishólmi en fyrirtækið hyggst hætta rækjuvinnslu um áramótin.

Strýta á Akureyri og Þormóður rammi Sæberg á Siglufirði gripu um svipað leyti til harkalegra aðgerða í hagræðingarskyni og var 30 manns sagt upp störfum á Akureyri og níu á Siglufirði.

Kristján Möller

Kristján Möller, þingmaður Samfylkingarinnar tók stöðu rækjuiðnaðarins upp utan dagskrár á alþingi. Hann kallaði hrun rækjuveiðanna náttúruhamfarir og gagnrýndi gengisstefnuna sem hann sagði heimatilbúinn vanda. Kristján nefndi einnig offramboð á rækjumörkuðum og samkeppni við ríkisstyrktar veiðar Evrópuþjóða og nefndi Spán í því sambandi. Kristján benti sjávarútvegsráðherra á að í lögum um stjórn fiskveiða hefði hann heimild til að ráðstafa aflaheimildum til að mæta áföllum á borð við hrun rækjuveiðanna. "Ætlar ríkisstjórnin ekki að gera neitt?"

Einar K. Guðfinnsson sjávar­útvegsráðherra sagði stöðuna alvarlega en ekki aðeins bundna við gengi krónunnar. "Rækju­iðnaðurinn á framtíð fyrir sér. "Ég bind vonir við starf nefndarinnar en lausnin er ekki einföld."

Einar sagði að enn hefði ekki komið til álita að úthluta veiðiheimildum til rækjuútgerða í krafti níundu greinar laga um stjórn fiskveiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×