Ævintýrin og rómantíkin 10. nóvember 2005 06:00 Ágúst og Izumi hafa starfað saman sem dúó í nokkur ár og koma fram á tónleikum í Salnum í Kópavogi.
Danska ævintýraskáldið H.C. Andersen og þýska leikritaskáldið Friedrich Schiller verða báðir í aðalhlutverki á tónleikum Ágústs Ólafssonar barítonsöngvara í Salnum í kvöld. Tónleikana nefnir Ágúst "Ævintýramaður og rómantíker", sem á einkar vel við þar sem á efnisskránni eru sönglög og aríur eftir Grieg, Schumann, Schubert, Rossini og Verdi við texta eftir danska ævintýraskáldið og þýska rómantíkerinn. Sem kunnugt er hafa Danir verið að halda upp á það að 200 ár eru liðin frá fæðingu Andersens, en mikið hefur líka verið við haft í Þýskalandi þar sem menn hafa í ár verið að halda upp á að 200 ár eru liðin frá andláti Schillers. "Schiller var talinn Shakespeare Þýskalands á sínum tíma," segir Ágúst, sem kemur fram ásamt japanska píanóleikaranum Izumi Kawakatsu. "Hvorki Andersen né Schiller eru sérstaklega þekktir fyrir ljóðin sín. Þeir eru mjög ólík skáld, en báðir sömdu þeir ljóð og við Izumi höfum lengi haft augastað á tónverkum sem voru byggð á ljóðum þeirra. Okkur fannst gott að nota þetta tækifæri til að minnast þeirra, ekki síst vegna þess hvað þeir voru ólíkir. Þetta býður upp á býsna fjölbreytilegt einsöngskvöld." Izumi Kawakatsu hefur búið í Þýskalandi í ein sex ár þar sem hún hefur stundað nám í ljóðasöngsundirleik. "Ég hitti hana þar sem ég var í ljóðasöngsnámi í Karlsruhe. Síðan var okkur skömmu síðar boðið að taka þátt í tímum í ljóðasöng hjá Dietrich Fischer-Dieskau. Upp frá því fórum við að starfa saman sem dúó og höfum haldið tónleika víða." Þau hafa einnig sótt tíma hjá hinni virtu söngkonu Elisabeth Schwarzkopf og tóku á síðasta ári þátt í alþjóðlegri ljóðasöngsdúókeppni í Stuttgart þar sem þau lentu í öðru sæti. Ágúst býr í Finnlandi en er með annan fótinn í Þýskalandi þar sem hann kemur reglulega fram á tónleikum. "Við Izumi vorum meðal annars með tónleika í gamalli höll í Bruchsal núna í október. Nýlega tókum við líka þátt í norrænum ljóðasöngstónleikum með norskum og finnskum söngvurum, og stundum kíki ég líka í tíma hjá Elísabetu."
Menning Mest lesið Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Lífið Lítið kjöt á beinum rándýrsins Gagnrýni Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Lífið Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Lífið Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Lífið „Enginn nema ég þekkir þessa Ragnhildi“ Áskorun Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Lífið Ástarsorgin átakanleg en gjöful Tónlist „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Lífið Tapaði ellefu milljónum Lífið Fleiri fréttir Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn Oddvitaáskorunin: Alæta á tónlist Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Reyndi við lúmskar Friends-spurningar Leiðir skilja ekki hjá Charlize Theron og Balta Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Ungir skáksnillingar á Laufásborg unnu til verðlauna á EM Oddvitaáskorunin: Fær ekki lengur að velja tónlistina á viðburðum Oddvitaáskorunin: Byrjar settið á tjáningardansi við Euphoria Látlausir kjólar hafa átt sviðið en það er að breytast Með eina þriggja mánaða í vinnunni Oddvitaáskorunin: Erfðagóssið færi frekar til versta óvinar „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Tapaði ellefu milljónum Oddvitaáskorunin: Á í haltu mér - slepptu mér sambandi með morgunmat Hvað veistu um… pasta? Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Oddvitaáskorunin: Kleinan toppurinn á tilverunni Eldpiparshausar í átkeppni Læknuð af þrálátum hita og margra mánaða orkuleysi eftir jógaferð Ellefu ára þegar fyrrverandi maður Mariuh Carey vildi gera hana að stjörnu Sanna hét áður Díana Oddvitaáskorunin: Heillaðist alveg af Guðrið Sjá meira