Fannst ég frjáls þegar ég sá Sæma 25. mars 2005 00:01
Bobby Fischer lýsti væntumþykju sinni til Sæmundar Pálssonar á blaðamannafundi sem haldinn var á Hótel Loftleiðum í gærdag. Fischer sagðist fyrst hafa fundist hann vera frjáls þegar hann sá Sæmund í Kaupmannahöfn. Fischer kom til landsins með einkaþotu á fimmtudagskvöldið. Vel á annað hundrað manns voru á Reykjavíkurflugvelli þegar þotan lenti, þar af var fjöldi erlendra sem innlendra fjölmiðlamanna. Hann gaf þó engum nema Stöð 2 færi á viðtali fyrr en blaðamannafundurinn var haldinn í gær. Á fundinum kvaðst Fischer vera afar sæll með að vera kominn til Íslands. "Hér er hreint og gott loft, nóg rými og góður matur." Bandarísk yfirvöld hafa lýst vonbrigðum yfir ákvörðun íslenskra stjórnvalda að veita Fischer íslenskan ríkisborgararétt. Fischer sagðist ekki hafa áhyggjur af því að vera eftirlýstur í Bandaríkjunum. "Við skulum bara bíða og sjá hvað þeir gera," sagði hann. Hvað framtíðina varðar kvaðst hann helst vilja einbeita sér að því að klára skákklukkuna sem hann væri að hanna og ljúka við bók sem hann hefur lengi unnið að um nýstárlega taflmennsku. Svo ætlar hann að huga að sínum áhugamálum eins og ferðalögum og samræðum. Um áform unnustu sinnar vildi hann ekki ræða. Fischer hefur verið gagnrýndur fyrir öfgakenndar skoðanir sínar á ýmsum málefnum. Á fundinum vandaði hann ekki gyðingum kveðjurnar. "Þeir hafa rænt mig eigum mínum, til dæmis gögnunum sem ég var kominn með í taflbókina mína, þeir eru meira að segja búnir að ræna mig nafninu og nota það til að græða á því." Einar S. Einarsson úr stuðningsnefnd Bobby Fischer hefur gagnrýnt framgöngu Páls Magnússonar, fréttastjóra Stöðvar 2, við komu skákmeistarans á Reykjavíkurflugvöll. Hann lýsti því sem svo að engu væri líkara en sjónvarpsstöðin hefði rænt honum svo enginn annar fjölmiðill fengi aðgang að honum. Spurður sagði Fischer að það hefði verið ákvörðun sín og allra sem í hlut áttu að fara beinustu leið af vettvangi við komuna án þess að tala við fjölmiðla eða menn úr stuðningsnefndinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira