Líf og fjör á sjómannadaginn 5. júní 2005 00:01
Hátíð hafsins var haldin í blíðskaparviðri við Reykjavíkurhöfn á sjómannadaginn. Fjöldi fólks var samankominn til að fylgjast með umfangsmikilli dagskrá sem var í boði. Í bláu ræðutjaldi voru Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadagsráðs, á meðal þeirra sem stigu á stokk. Meðal annars fögnuðu menn mjög opnun Sjóminjasafns Reykjavíkur að Grandagarði þar sem sögð er saga íslenskra togara. Í ár er einmitt ein öld síðan fyrsti íslenski togarinn, Coot, kom til landsins. Þegar ræðuhöldunum var lokið voru fimm sjómenn heiðraðir fyrir ævistörf sín. Úti í góða veðrinu var iðandi mannlíf. Hoppukastalar höfðu verið settir upp fyrir krakkana og voru þeir svo vinsælir að biðraðir mynduðust skjótt við þá. Stórt veitingatjald var einnig á svæðinu þar sem veitingar voru í boði. Almenningi var boðið í skemmtisiglingar um borð í skólaskipinu Sæbjörgu, sem áður hét Akraborgin, og nýttu fjölmargir tækifærið. Auk þess fóru sjómenn í kappróður, koddaslag og reiptog þar sem hart var barist eins og siður er á þessum degi. Þá var boðið upp á listflug við Miðbakkann og störðu margir opinmynntir á skærgula flugvélina þeytast um loftin blá. Á Ingólfstorgi var einnig margt um manninn. Þegar blaðamann bar að garði dönsuðu þar félagar í reykvíska dansfélaginu "Komið og dansið" undir tónum Geirmundar Valtýssonar. Allt í kring borðaði fólk ís eða sat í mestu makindum á kaffihúsum og sleikti sólina. Á sama tíma og dansinn dunaði léku krakkar sér á hjólabrettum hinum megin á torginu og því má með sanni segja að fólk á öllum aldri hafi átt þarna ánægjulegan dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Fleiri fréttir Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Sjá meira