Norræn innrás í danska háskóla 30. júlí 2005 00:01 MYND/Vísir
Danir eiga erfiðara með að komast inn í háskóla í Danmörku vegna aukinnar eftirsóknar Norðmanna og Svía. Lægri inntökuskilyrði eru sögð skýring þessarar svokölluðu norrænu innrásar. Íslendingar kannast við það að fá fyrst svar í lok júlí um skólavist í Danmörku. Það er því skólatími hjá dönskum fjölmiðlum sem velta upp alls konar tölfræði þessa dagana. Dagblaðið Politiken tekur dæmi um fjölda Norðmanna og Svía sem fengu inngöngu í danska háskóla þetta árið og nefnir þróunina norræna innrás. Í dýralækningum eru fjörutíu prósent nemenda Norðmenn og Svíar, rúmlega þrjátíu prósent í arkitektarnámi og um tuttugu prósent í hönnunarnámi. Lágmarkseinkunn er hærri í Noregi og Svíþjóð og þess vegna leitar fólk sem kemst ekki inn þar yfir til Danmerkur. Það þýðir hins vegar að árlega er þúsundum Dana neitað um skólavist en reglur ESB kveða á um að norrænir nemendur, og nemendur frá ESB-löndum, eigi jafnan rétt. Mikið atvinnuleysi er meðal arkitekta og hönnuða svo það veldur Dönum ekki áhyggjum en aðra sögu er að segja af læknum manna og dýra. Stjórnandi hjá Kaupmannahafnarháskóla hefur áhyggjur af þróuninni og segir í samtali við Politiken að það sé ekki sanngjarnt að Danir komist ekki inn vegna ásóknar Svía í læknisfræðina. Hann segir að um tuttugu prósent lækna sem þeir útskrifi komi til með að vinna í Svíþjóð og svo geti farið að skortur verði á læknum í Danmörku í framtíðinni þannig að Danir þurfi jafnvel að leita sér læknisaðstoðar í Svíþjóð, hjá læknum sem lærðu í Danmörku. Þrátt fyrir að Íslendingum í námi í Danmörku hafi fjölgað undanfarin ár getur þjóðin huggað sig við það að vera ekki tekin með í umræðu um norræna innrás.
Erlent Fréttir Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Sjá meira