Herinn má beita stórskotaliði 25. september 2005 00:01
Ríkisstjórn Ísraels hefur gefið hernum heimild til þess að beita stórskotaliði til þess að stöðva eldflaugaárásir Palestínumanna frá Gaza-svæðinu. Þess eru varla fordæmi að ríkisstjórn hafi gefið leyfi til þess að beita stórskotaliði nánast innan eigin landamæra. Ísraelar hafa raunar beitt bæði þyrlum og orrustuþotum til árása á meinta hryðjuverkamenn, en þetta er engu að síður nýtt skref í átökunum undanfarna áratugi. Þegar í morgun var skotið af fallbyssum inn á Gaza-svæðið og segir yfirstjórn hersins að þetta hafi verið prufuskot til þess að hægt verði að skjóta með mikilli nákvæmni, ef þörf krefur. Ísraelska stórskotaliðið ræður yfir ratsjám sem á augnabliki geta reiknað út nákvæmlega hvaðan eldflaugum er skotið, og er hægt að svara slíkum árásum samstundis með fallbyssuskothríð. Slík skothríð getur auðvitað valdið manntjóni meðal óbreyttra borgara en palestínskir hryðjuverkamenn eru gjarnir á að skýla sér á bakvið sakleysingja. Ísraelar handtóku yfir tvö hundruð grunaða hryðjuverkamenn á Vesturbakkanum í dag og vöruðu Palestínumenn við harkalegum hefndaraðgerðum vegna eldflaugaárása frá Gaza-svæðinu. Tvær vikur eru liðnar frá því Ísraelar fluttu landnemabyggðir og alla hermenn sína frá Gaza. Palestínskar öryggissveitir eiga nú að halda þar uppi lögum og reglu.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Sjá meira