Innlent

Hagnaðurinn nálgast 12 milljarða

Hagnaður af rekstri KB banka á þriðja ársfjórðungi nam rúmlega fimm og hálfum milljarði króna og hagnaður bankans fyrstu níu mánuði ársins nemur 11,7 milljörðum króna. Það er hagnaður upp á vel á annan milljarð króna á mánuði. Arðsemi eigin fjár fyrstu níu mánuðina nam 32,5%. Stjórn bankans ákvað í morgun að að selja allt að 110 milljónir nýrra hluta í bankanum til að efla eiginfjárstöðu sína og til að auðvelda bankanum hugsanlegar yfirtökur á fyrirtækjum. Reiknað er með að hver hlutur seljist á 460 til 500 krónur. Nýja hlutaféð stendur aðeins fagfjárfestum til boða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×