Bensínlítrinn lækkar 15. júní 2004 00:01
Bensínlítrinn hefur lækkað eftir nær samfellda hækkun í tvo mánuði og er undir hundrað krónur á tilteknum bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Atlantsolía reið á vaðið í gærmorgun og lækkaði bensínverð í 99,90 krónur á stöðvum sínum. Keppinautar félagsins lækkuðu í kjölfarið verð hjá sér um krónu á lítrann. Hugi Hreiðarsson, talsmaður Atlantsolíu, sagði að ástæðan fyrir verðlækkuninni í gær væri lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu. "Við fylgjumst grannt með þróun heimsmarkaðsverðs. Við kaupum eldsneyti okkar frá Evrópu og fylgir verðið því markaðsverði í Rotterdam. Verðlækkun í síðustu viku gaf okkur tilefni til þessarar lækkunar nú. Ákveðið jafnvægi er komið á verðþróun á bensíni að nýju eftir tveggja mánaða samfellda hækkun," sagði Hugi. Olís lækkaði bensínlítrann á stöðvum sínum að meðaltali um eina krónu á lítrann að sögn Samúels Guðmundssonar, framkvæmdastjóra áhættustýringarsviðs Olís. Aðspurður sagði Samúel að lækkun á heimsmarkaðsverði hefði ráðið lækkuninni hjá Olís. Hann sagði verðlækkunina misjafna eftir staðsetningu bensínstöðvanna. Aðspurður um hvernig stæði á því að bensín væri lækkað mismikið eftir stöðum sagði hann að verðlagning Olís væri einfaldlega þannig. Essó hefur lækkað verð á öllum bensínstöðvum um krónu að sögn Jóhanns Jónssonar, kynningarfulltrúa. Auk lækkandi heimsmarkaðsverðs vill Essó jafnframt vera í góðri stöðu gagnvart keppinautum sínum. Verð á Egó stöðvunum er nú hið sama og hjá Atlantsolíu en á öðrum stöðvum Essó á bilinu 101 til 110,90, eftir staðsetningu og hvort um fulla þjónustu sé að ræða, að sögn Jóhanns. Atlantsolía vakti athygli viðskiptavina á verðmuni milli bensínstöðva í gær með því að halda uppi skilti með verði bensínlítrans á bensínstöðvum keppinauta sinna. Hugi sagði að bensínlítrinn væri almennt um sex krónum ódýrari að meðaltali á þeim svæðum þar sem Atlantsolía er með bensínstöðvar. "Það er ótækt að keppinautar okkar lækki aðeins verð í næsta nágrenni við okkur og teljum við að þar með séu þeir að brjóta samkeppnislög," segir Hugi og bendir jafnframt á að það mál sé þegar til rannsóknar hjá samkeppnisyfirvöldum og í eðlilegum farvegi þar.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Fleiri fréttir Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði