Innlent

Varnarliðið verður hér

Stórt skref var stigið í þá átt að varnarliðið í Keflavík verði áfram hér á landi. Þetta sagði Davíð Oddsson utanríkisráðherra í viðtali við Ríkissjónvarpið eftir fund hans með Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington í gær. Davíð sagði að ákveðið hefði verið að halda viðræðunum áfram í janúar en þá munu embættismenn ríkjanna funda. Á þeim fundi verður gengið formlega frá því hvernig vörnum Íslands verður háttað í samræmi við varnarsamning ríkjanna. Davíð sagði að Powell hefði gefið það sterklega til kynna að ekki kæmi til greina að taka varnarliðið héðan. Fundurinn Davíðs með Powell hófst í gær klukkan 18.30 að íslenskum tíma og lauk skömmu eftir klukkan 19. Davíð mun næst hitta utanríkisráðherra Bandaríkjanna á ráðherrafundi Atlantshafsbandalagisns í desember.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×