Friðargæslustarfið heldur áfram 24. október 2004 00:01
Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega sprengjuárásina í Kabúl í Afganistan í gær og yfirlýsingu Talíbana í kjölfar hennar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að atburðirnir í Kabúl hafi engin áhrif á starf Íslensku friðargæslunnar þar. Ögmundur Jónasson alþingismaður segir að stjórnvöld hafi leynt og ljóst verið að koma upp vísi að íslenskum her. Forsætisráðherra segir atburðinn í gær hörmulegan. Íslendingar muni samt áfram starfa í Afganistan eins og þeir hafi skuldbundið sig til að gera. Farið verði yfir öryggisráðstafanir ásamt samstarfsþjóðunum. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist harma atburðinn en hann undirstriki fyrst og fremst að Íslendingum beri að halda uppi öflugri öryggisgæslu í Kabúl. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir þetta sorglegan atburð og hann hugsi til mannanna sem lentu í árásinni. Þetta sé þeim mun sorglegra sem þeir séu beinlínis staddir í Afganistan til að stilla til friðar. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, segir að stjórnvöld hafi leynt og ljóst verið að koma upp vísi að íslenskum her án þess að nein pólitísk ákvörðun liggi fyrir um það. Mennirnir séu til að mynda undir vopnum og beri hertitla. Einar K. Guðfinnsson segir ósmekklegt að ráðast á íslensku friðargæsluna með þessum hætti og af þessu tilefni. Honum finnst þetta undarleg tilraun til að reyna að koma höggi á friðargæslustarfsemi Íslendinga sem fengið hafi lof alþjóðasamfélagsins. Einar segir að það beri að harma og fordæma slík vinnubrögð og pólitískan keiluslátt. Spurður hvort íslensku friðargæslumennirnir séu hermenn, líkt og Reuters hélt fram í fréttaskeyti í morgun, segir Halldór Ásgrímsson að þeir séu vopnaðir og hafi því möguleika til sjálfsvarnar, en þeir séu ekki hermenn. Þeir lúti aga og beri titla en forsætisráðherra vill ekki kalla það „heraga“ eða líkja titlunum við þá sem tíðkast innan herja. „Við erum ekki með her en að sjálfsögðu þarf að skipuleggja mál með öðrum hætti en til dæmis hér á landi þegar svona ástand er,“ segir Halldór. Forsætisráðherra segir fulla ástæðu til að auka öryggi Íslendinganna meira en verið hefur til þessa. Hann segir að farið verði yfir þau mál ásamt samstarfsþjóðum Íslands í Afganistan. Spurður hvort Samfylkingin taki undir með Vinstri grænum að þarna sé um vísi að íslenskum her að ræða segir Össur erfitt að segja hvort þarna sé um her að ræða. Hitt sé ljóst að friðargæsluliðarnir gangi inn í hernaðarskipulag, eru vopnaðir og í einkennisbúningi og því auðvelt að skilgreina þá sem hermenn. Össur segir þetta hluta af því að við höfum afráðið sem þjóð að axla meiri byrðar innan NATO og alþjóðlegs hálparstarfs og flokkurinn sé á því að Ísland eigi í vaxandi mæli að axla slíkar byrðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Fleiri fréttir Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Sjá meira