Hækka skólagjöldin um 500%? 19. október 2004 00:01
Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands verða sameinaðir næsta haust og verða þar með að næststærsta háskóla landsins, með um 2500 nemendur. Miðað við núverandi skólagjöld má reikna með að skólagjöld Tækniskólanemenda hækki um rúmlega 500 prósent. Stofnun einkahlutafélags sem tekur yfir starfsemi Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands var kynnt í dag. Hlutafé hins nýja félags er 300 milljónir króna. Verslunarráð Íslands leggur til 270 milljonir, Samtök iðnaðarins leggja til tuttugu milljónir og Samtök atvinnulífsins tíu milljónir. Jón Karl Helgason, stjórnarformaður Verslunarráðs Íslands, segir að með sameiningunni verði t.a.m. hægt að taka inn verkfræðimenntun og kennaramenntun og stækka skólann og efla. Þannig sé hann bjartsýnn á að þetta muni efla menntun í landinu til langframa. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að ríkið muni greiða nemendaígildi og rannsóknarframlag til skólans, líkt og það hafi gert við alla háskóla landsins, og að þessi samruni dragi á engan hátt úr framlagi ríkisins til háskólanáms. Núverandi nemendur Tækniháskólans greiða áfram skólagjöld á núverandi forsendum skólans en ljóst má vera að skólagjöld nýrra nemenda hækkar að sögn menntamálaráðherra. Innritunargjald í Tækniháskólann er nú 32 þúsund krónur á ári en í Háskólann í Reykjavík tæpar 200 þúsund krónur. Sé miðað við þetta mun innritunargjald í fyrrnefnda skólann hækka um rúm 500 prósent. Jón Karl segir tímabært að færa umræðu um skólagjöld upp á annað plan. Það sé í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að menn fjárfesti í sinni menntun og reynslan af skólagjöldunum við HR sé góð. Báðir rektorar skólanna, Guðfinna S. Bjarnadóttir hjá HR og Stefanía K. Karlsdóttir hjá THÍ, segjast himinlifandi með samrunann. Þó er ljóst að annar hvor þarf að víkja en báðir hafa áhuga á að verða rektor hins nýja skóla.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira