Útilokar ekki málsókn gegn ríkinu 17. október 2004 00:01
Ágreiningur er á milli Þjóðkirkjunnar og ríkisins um eignarréttarstöðu prestssetra. Ríkið hefur boðist til að greiða kirkjunni 150 milljónir króna vegna prestssetra en kirkjan vill hins vegar fá þrjá milljarða í sinn hlut. Árið 1997 var samið um að kirkjujarðir yrðu eign ríkisins en prestssetur voru þar undanskilin. Fimm árum síðar gerði ríkið kirkjunni tilboð þess efnis að hún tæki setrin til eignar og fengi auk þess 150 milljónir króna. Á þetta vildu kirkjunnar menn hins vegar ekki fallast því ríkið skilgreindi prestssetur of þröngt. Björn Bjarnason kirkjumálaráðherra gerði þennan ágreining að umtalsefni á kirkjuþingi í gær. Hann sagðist undrast þá gjá sem myndast hefði á milli ríkis og kirkju og benti á að 1997 hefði sátt verið um hvaða prestssetur flyttust til Prestssetrasjóðs. Karl Sigurbjörnsson biskup, segir að kirkjan hafi lengi leitað eftir viðræðum. "Frá því að okkur var tjáð að forsætisráðherra hefði tekið við málinu höfum við engin skilaboð fengið nema að þessi ræða frá kirkjumálaráðherra sé vísbending um að það sé komið á hans borð," segir Karl og bætir því við að landbúnaðarráðuneytið hafi selt jarðir sem ágreiningur var um hvort tilheyrðu ríki eða kirkju. Hann leggur áherslu á að sjálf fjárhæðin sé ekki aðalatriðið í málinu heldur að þeir sem beri ábyrgð á málefnum kirkjunnar geti ekki látið slík verðmæti af hendi nema að löglega sé að því staðið. Karl segir jafnframt athyglisvert að þegar ríkið bauð kirkjunni 150 milljónir fyrir prestssetrin árið 2002 þá hafi sóknargjöld til trúfélaga verið lækkuð um 150 milljónir um svipað leyti. Biskup segir að ráðherrar hafi gefið í skyn að vilji væri til að semja. "En það er mikið að gera á stóru heimili og kannski erum við ekki nógu hávær í þessu. Hins vegar er ekki hægt að útiloka málsókn ef allt um þrýtur," segir Karl Sigurbjörnsson biskup.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Fleiri fréttir Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Sjá meira