Bullandi verðstríð í bensíni 15. október 2004 00:01
Verðstríð er skollið á á eldsneytismarkaðnum. Í gær og fyrradag breyttist enn verð hjá olíufélögunum, sem lækkuðu fullt þjónustuverð um 2 krónur á lítrann, auk annarra verðbreytinga til lækkunar. Metið á þó líklega Orkan, sem lækkaði lítrann úr 105,50 krónum í gærmorgun niður í 101,90, en um hádegisbil var lítraverðið orðið 103,80 á flestum stöðum. Sum stærri olíufélaganna brugðust við þessu með lækkunum en drógu þær til baka eftir að Orkan hafði hækkað aftur. Tíðar verðbreytingar hafa orðið á eldsneyti hjá olíufélögunum í þessum mánuði og verðið rokkað upp og niður. Í byrjun mánaðarins hækkuðu stóru félögin verðið um tvær krónur, nema Orkan, sem hélt sínu verði óbreyttu. Þegar rúm vika var af mánuðinum lækkuðu stóru félögin öll verð á línuna um tvær krónur. Fáeinum dögum síðar hækkuðu þau um tvær krónur, en lækkuðu aftur um sömu upphæð í gær og fyrradag, eins og áður sagði. Fullt þjónustuverð er nú 111,50, en var 113,50. Sjálfsafgreiðsluverð á 95 oktana bensíni hefur sveiflast með öðrum verðbreytingum, svo og verð á dísilolíu. "Við fórum fullgeyst í þessar lækkanir, sáum það fljótlega og hækkuðum því að hluta aftur," sagði Gunnar Skaptason, forstjóri Orkunnar, spurður um verðsveiflur gærmorgunsins. "Markaðsaðstæður hafa leitt til þess að landslagið er aðeins öðruvísi núna," sagði Magnús Ásgeirsson hjá Esso, spurður um ástæður þessara tíðu verðbreytinga, meðan heimsmarkaðsverð á eldsneyti er í hæstum hæðum. "Verð hefur verið að hækka og lækka á víxl síðustu daga. Þetta er bara umhverfið sem við erum í. Það er auðvitað bullandi samkeppni á markaðnum hér." Hann vildi ekki svara nánar spurningu blaðsins um hvernig stæði á því að olíufélögin hefðu nú svigrúm til að lækka eldsneytisverð, þegar heimsmarkaðsverð væri í sögulegu hámarki. Viðmælendur blaðsins hjá olíufélögunum lögðu áherslu á að þeir héldu sinni vöru á samkeppnishæfu verði, "hvað sem það kostaði," eins og einn þeirra komst að orði.
Fréttir Innlent Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Fleiri fréttir „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Sjá meira