Innlent

Loforð ekki efnt

Ríkisstjórnin hefur ekki staðið við loforð um að bæta stöðu útlendinga á vinnumarkaði, sem hún gaf við gerð síðustu kjarasamninga. Þetta sagði Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambandsins, á ársfundi Starfsgreinasambandsins í gær. Hann sagði loforðið hafa verið mikilvægt innlegg í niðurstöðu kjaraviðræðna. Verkalýðshreyfingin hefði staðið í þeirri meiningu að lögin yrðu afgreidd í vor. Það hafi hins vegar ekki gerst og enn bóli ekki á því. Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir að málið sé væntanlegt til umræðu á yfirstandandi þingi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×