Innlent

Gæslan í sprengjuleit

Mikið fannst af sprengifimum hlutum, sprengjubrotum, skotfærum og púðri í leit sem Landhelgisgæslan stóð fyrir á svæðinu norðvestur af Stapafelli á Reykjanesi í síðustu viku. Svæðið er merkt með skiltum en ekki afgirt. Landhelgisgæslan segir að 25 starfsmenn vopnadeildar varnarliðsins hafi tekið þátt í leitinni. Í tilkynningu Landhelgisgæslunar segir að slíkar leitir séu gerðar reglulega á æfingarsvæðum og sprengjueyðingarsvæðum varnarliðsins á Reykjanesi.  "Á þessu ári hefur Landhelgisgæslan staðið fyrir leit á svæðinu í kringum Kleifarvatn, Vogaheiði og Stapafell með góðum árangri. Fundist hafa yfir 100 hlutir sem hefur verið eytt."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×