Þriðjungur reyndi sjálfsvíg 23. september 2004 00:01
Réttur þriðjungur þeirra unglinga sem lagðir voru inn á Barna- og unglingageðdeild á árunum 2001 og 2002 höfðu reynt að taka líf sitt eða skaðað sjálfa sig. Algengustu geðraskanir hjá þessum unglingum voru þunglyndi, áfallastreita i kjölfar misnotkunar, ofvirkni- og hegðunarraskanir og loks misnotkun vímuefna, að sögn Ólafs Ó. Guðmundssonar yfirlæknis á BUGL. BUGL skiptist í þrjár deildir; göngudeild, þangað sem langflestir leita, barnadeild og unglingadeild. Á unglingadeild dvelja einstaklingar á aldrinum 13-17 ára. Ólafur sagði, að af samtals 100 innlögnum á unglingageðdeild árið 1995 hefði í 13% tilvika verið um sjálfsskaða og sjálfsvígstilraunir að ræða. Af 168 innlögnum 2001 og 2002 væri hlutfall þeirra sem reyndu að taka líf sitt eða höfðu skaðað sig komið upp í 32.7%. " Það er því ljóst að sjálfsskaðahegðun og sjálfsvígstilraunir unglinga er vaxandi ástæða fyrir innlögnum á BUGL og ein af skýringunum fyrir vaxandi eftirspurn eftir þjónustu deildarinnar," sagði Ólafur. "Þannig hafa um 40% þunglyndra unglinga sem leggjast inn á BUGL skaðað sig eða gert tilraun til sjálfsvígs. Eftir því sem líður á unglingsaldurinn er þunglyndi orðið jafnalgengt hjá unglingum og fullorðnum og algengara hjá stelpum heldur en strákum." Ólafur sagði vitað, að þunglyndi, áfallastreita og hegðunarraskanir væru sýnilegri hjá unglingum nú heldur en áður. Frekar væri leitað eftir þjónustu vegna þessa nú heldur en áður, meðal annars vegna minni fordóma. "Væntanlega endurspeglar það að einhverju leyti raunverulega aukningu þessum vanda," sagði Ólafur. "Í nágrannalöndunum hefur sama þróun átt sér stað og það hefur verið um raunverulega aukningu að ræða. Eitt af því sem menn hugleiða er hvort þetta sé af völdum einhverra þátta í samfélaginu og þá hvaða þátta." Í um 11% tilvika var vímuefnanotkun til staðar hjá þeim sem lögðust inn á árunum 2001 og 2002, að sögn Ólafs. Af þeim höfðu rúm 70% gert tilraun til sjálfsvígs sem var þá innlagnarástæðan á BUGL.
Fréttir Innlent Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira