Öruggur sigur Skagamanna 12. september 2004 00:01
Skagamenn sóttu þrjú stig auðveldlega í greipar Víkings á Víkingsvellinum í gær. Víkingar virkuðu smeykir og var ekki að sjá á leik þeirra að þeir væru að róa lífróður í deildinni. Unnar Örn Valgeirsson kom Skagamönnum á bragðið á 26. mínútu með öruggu skoti frá markteig eftir fyrirgjöf Stefáns Þórs Þórðarsonar frá vinstri kantinum. Helgi Pétur Magnússon skoraði svo annað mark Skagamanna á 31. mínútu eftir fyrirgjöf frá Hjálmi Dór Hjálmssyni. Eftir mörkin tvö sóttu Víkingar stíft en Skagamenn voru vandanum vaxnir og vörðust af kappi. Helgi bætti svo þriðja markinu við í byrjun síðari hálfleiks með góðum skalla úr markteig eftir að Martin Trancik hafði varið vel skot utan úr teig. Á 74. mínútu skoruðu víkingar eina mark sitt. Markið skoraði varnarmaðurinn Grétar Sigfinnur Sigurðsson með skalla eftir að Þórður Þórðarson fór í skógarferð í vítateig sínum. Skagamenn tryggðu sér svo sigurinn á 70. mínútu með þriðja marki Helga Péturs úr markteig eftir fyrirgjöf Arnars Más Guðjónssonar sem kom inn á sem varamaður. „Þetta var ágætisleikur hjá okkur í dag. Fjögur góð mörk og mikil barátta í liðinu. Við náðum að hefna okkur fyrir ófarirnar á Skaganum í fyrri umferðinni þar sem við töpuðum. Liðið var að fúnkera mjög vel sem heild það var kannski enginn einn sem stóð upp úr hjá okkur. Við slökuðum aðeins á eftir annað markið og fórum að búa til óþarfa pressu á okkur sjálfa. Við byrjuðum svo síðari hálfleik á ágætismarki og eftir það var þetta aldrei spurning,“ sagði Ólafur Þórðarson þjálfari Skagamanna kampakátur eftir leikinn. Ólafur þurfti að fylgjast með leiknum úr stúkunni þar sem hann var í leikbanni vegna fjögurra gulra spjalda. „Þetta er búið að vera erfitt upp á síðkastið, við erum búnir að missa menn út um hvippinn og hvappinn. Við erum ekki nógu einbeittir í að koma boltanum í burtu. Við erum að gera herfileg mistök í varnarleiknum og því fór sem fór,“ sagði Sigurður Jónsson þjálfari Víkinga eftir leikinn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Fleiri fréttir Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Sjá meira