Verður FH Íslandsmeistari? 11. september 2004 00:01
FH gæti fagnað sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í knattspyrnu karla í dag en þá fer fram 17. og næstsíðasta umferðin í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. FH er með þriggja stiga forskot á ÍBV sem mætir Fylki í Eyjum. Vinni FH Fram og ÍBV tapar stigum gegn Fylki er titillinn FH-inga. Reyndar eiga Fylkismenn enn veika von um að hampa titlinum eftirsótta en þá þarf liðið að leggja ÍBV að velli og FH að tapa eða gera jafntefli gegn Fram. Síðan þyrfti allt að ganga upp hjá Árbæjarliðinu í lokaumferðinni. Á þessu má sjá að staða FH er afar vænleg og miðað við spilamennsku liðsins undanfarin misseri eru talsverðar líkur á að titillinn verði þeirra. Fyrir fimmtán árum síðan var FH-liðið í mjög svipaðri stöðu. Það gat tryggt sér titillinn á heimavelli í lokaumferð Íslandsmótsins árið 1989 með sigri á Fylki sem var þá svo gott sem fallið. FH tapaði hins vegar þeim leik, 1-2, og á sama tíma vann KA sigur á Keflavík á útivelli, 0-2, og stal hreinlega titlinum af FH á síðustu stundu. Það verður nú að segjast eins og er að lið FH í dag er mun sterkara en liðið 1989 og árangur FH í ár er ekki á neinn hátt tilviljunarkenndur eða markaður heppni. Þeir hafa leikið bestu knattspyrnuna og eru með breiðasta hópinn en nú mun þetta allt snúast um taugarnar. Þær brugðust fyrir fimmtán árum og spurningin er hvort þær halda nú. Ólafur Jóhannesson er þjálfari FH og hann var einnig við stjórnvölinn árið 1989, kom reyndar víða við í millitíðinni. Hann vill því væntanlega ná loksins að kveða niður drauginn sem fylgt hefur knattspyrnuliði FH öll þessi ár. Á hinn bóginn eru andstæðingar FH-inga, Framarar, oftast sterkastir á þessum tíma árs. Ár eftir ár hefur liðið bjargað sér frá falli í 1. deild á lokasprettinum og það sama virðist ætla að vera uppi á teningnum nú. Eftir hræðilega byrjun og þjálfaraskipti hefur leið liðsins legið upp á við og þeir munu án alls vafa leggja allt í leikinn gegn FH. Baráttan á botninum er einnig grjóthörð og Víkingur og KA gætu fallið í dag. Ef Víkingar tapa gegn Skagamönnum og KA fyrir KR, Fram vinnur FH, og Grindvíkingar næla sér í stig gegn Keflvíkingum, munu Víkingur og KA falla í 1. deild. Það getur margt gerst í þessari næstsíðustu umferð, úrslit geta ráðist á toppi og botni - en á hinn bóginn er möguleiki á því að spennan aukist ennfrekar og að allt ráðist í lokaumferðinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Fleiri fréttir Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Sjá meira