Þrjú eldfjöll sýna merki um virkni 8. september 2004 00:01
Þrjú af virkustu eldfjöllum Íslands, Hekla, Katla og Grímsvötn, sýna nú öll ótvíræð merki um að eldgos sé í uppsiglingu. Kvikuþrýstingur í Heklu er kominn upp undir það sem hann var fyrir síðasta gos. Margir hafa giskað á að Katla yrði næsta eldfjall Íslands til að gjósa en vísindamenn hafa undanfarin ár sérstaklega beint sjónum að henni. Á skjálftamælum Raunvísindadeildar Háskóla Íslands mátti til að mynda sjá óróa undir Kötlu fyrr í dag. Grímsvötn, sem síðast gusu fyrir sex árum, hafa hins vegar einnig verið að sýna merki sem helst eru talin forboðar eldsumbrota. Páll Einarsson, prófessor segir að Katla hafi byrjað að sýna þessi merki árið 1999 og Grímsvötn hafi verið að sækja í sig veðrið og kvikuþrýstingur sé hærri en fyrir síðasta gos. Þrýstingur sé því nægur til að koma upp gosi ef svo ber undir. Þá hafi verið samfelld skjálftavirkni í 3 ár við Kötlu, aðallega vestan við Kötluöskjuna í svokallaðri Boðabungu. Páll segir að þetta sé mjög óvenjuleg virkni í hvaða eldfjalli sem er í heiminum. Nú er sjálf Hekla einnig farin að láta vita af sér með vaxandi kvikuþrýstingi. Það kemur mörgum á óvart svo skömmu eftir síðasta Heklugos fyrir fjórum árum. Páll segir að hún hafi verið óvenju virk síðustu áratugi og að þrýstingur þar sem kominn upp undir það sem hann var í síðasta gosi. Því sé full ástæða til að hafa auga með Heklu líka. Hann segir þó að þótt eldfjöllin gætu gosið hvenær sem er sé ekki hægt að draga ályktun um að gosin séu yfirvofandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira