Lokuð geðdeild verður á Kleppi 8. september 2004 00:01
Lokuð geðdeild fyrir einstaklinga sem taldir eru hættulegir sjálfum sér og umhverfi sínu verður staðsett á Kleppsspítala, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. Tuttugu einstaklingar eru sagðir falla undir þessa skilgreiningu, en þeir hafa verið inn og út af geðdeildum. "Við höfum sett á það fullan kraft núna að undirbúa móttöku og aðstöðu fyrir þessa einstaklinga innan geðdeildar LSH," sagði ráðherra. " Það hafa komið upp mjög vond einstaklingsmál, sem þarfnast úrræða. Við höfum eindregið verið þeirrar skoðunar að stærsta geðdeild landsins þurfi að meðhöndla slík mál." Nokkuð hefur tafist að koma þessari deild á laggirnar, meðal annars vegna skiptra skoðana um hvar ætti að staðsetja hana. Lengi vel var horft til Arnarholts eða Sogns í þeim efnum, en nú hefur Kleppsspítali orðið fyrir valinu. Ráðherra sagði að einnig væri unnið að eflingu þjónustu utan stofnana. Þar væri um að ræða sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar, svo og endurhæfingu geðsjúkra, sem nokkrir aðilar hefðu með höndum. "Við höfum verið að auka fjárveitingar til heilsugæslunnar til þess að bæta við þjónustuna við geðsjúka, meðal annars til þess að koma upp teymi til að meðhöndla erfið tilfelli," sagði ráðherra. "Það teymi hefur tekið til starfa." Þá sagði hann starfandi nefnd þriggja ráðuneyta, sem fjallaði um sjálfræðissviptingamál þau sem upp kynnu að koma. Í henni sætu fulltrúar dómsmálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og félagsmálaráðuneytis.
Fréttir Innlent Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Fleiri fréttir „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Sjá meira