Helgi sigraði óvænt á Blöndósi 7. september 2004 00:01
Óvænt úrslit urðu í fjórðu og næstsíðustu umferð Íslandsmeistaramótsins í torfæruakstri sem ekin var á Blönduósi á laugardaginn. Þar kom, sá og sigraði ungur piltur, Helgi Gunnarsson að nafni, bifvélavirki frá Vík í Mýrdal. Helgi var að keppa í sinni sjöundu torfærukeppni en það var einmitt í Blönduósskeppninni í fyrra sem hann mætti fyrst til leiks með nýsmíðaðan torfærubíl. Vann þrotlaust í ár Sjö keppnum og ári síðar stóð hann efst á verðlaunapallinum eftir að hafa unnið þrotlaust í ár við að endurbæta torfærubílinn sem hann kallar Gæruna. Með þessum sigri sínum hefur Helgi stimplað sig, svo um munar, inn í torfæruna en í hógværð sinni þakkar hann aðstoðarmönnum sinum og öðrum sem hafa styrkt hann sigurinn. „Mikilvægast er að bíllinn sé í lagi,“ sagði Helgi eftir keppnina en þeir félagarnir hafa reyndar þurft að eltast við smá bilanir í bílnum í sumar, einkum í rafkerfinu. Svo var þó ekki á Blönduósi þar sem Gæran virkaði óaðfinnanlega og 350 cid Chevy-vélin skilaði skammlaust öllum sínum 600 hestöflum. „Mér fannst þetta vera reglulega skemmtileg keppni,“ sagði Helgi, sem vildi ekki gera upp á milli keppnisbrautanna. „Síðasta brautin var kannski skemmtilegust en þar tókst mér að tryggja sigurinn. Endabrekkan þar hefði þó ekki mátt vera lengri. Það var helvíti tæpt að ég næði alla leið uppî. Eftir þennan sigur sinn er Helgi annar í Íslandsmeistarakeppninni, 10 stigum á eftir Haraldi Péturssyni sem er í raun búinn að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Það er nánast formsatriði fyrir Harald að mæta í síðustu keppni ársins sem fram fer á Hellu 11. september. Gunnar Gunnarsson á Trúðnum sigraði í götubílaflokknum en það var þriðji sigur hanns á árinu. „Þetta hafðist í dag þrátt fyrir að ég klúðraði 2. brautinni”, sagði Gunnar, sem lenti reyndar einnig í vandræðum í 5. brautinni vegna þess að lofthreinsarinn á vélinni var orðinn pakkfullur af ryki og drullu. Átta stiga forusta Gunnars Keppnissvæðið var mjög þurrt og jarðvegurinn fíngerður svo að oftar en ekki hurfu bílarnir í rykmökk þegar ökumennirnir reyndu við erfiðar brekkur og börð. „Ég er nánast búinn að ná Íslandsmeistaratitlinum,“ sagði Gunnar, sem hefur átta stiga forskot á Ragnar Róbertsson. „Það er nánast formsatriði fyrir okkur að mæta á Hellu en við gerum ekki svoleiðis. Við mætum til að sigra. Það er alveg á hreinu og ég tala nú ekki um á Hellu,” sagðu Gunnar að lokum. JAK
Íþróttir Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Fótbolti Fleiri fréttir „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sjá meira