Vélamiðstöðin verði einkavædd 7. september 2004 00:01
Sjálfstæðismenn munu leggja til einkavæðingu Vélamiðstöðvar og Malbikunarstöðvarinnar Höfða á borgarstjórnarfundi í dag að því er kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Fundurinn er sá fyrsti hjá borgarstjórn á þessu hausti. Í tillögu minnihlutans segir meðal annars að Reykjavíkurborg eigi að draga saman seglin þar sem hún eigi í samkeppni við einkaaðila og leyfa fyrirtækjum á starfssviði Malbikunarstöðvarinnar Höfða ehf. og Vélamiðstöðvarinnar ehf. að keppa um að veita þjónustu fyrir borgina á sem hagkvæmastan hátt. Jafnframt vilja borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að borgarstjórn beini þeim tilmælum til Vélamiðstöðvar ehf. um að draga til baka tilboð félagsins í nýlegu útboði vegna þjónustu við endurvinnslustöðvar Sorpu bs. og umsókn sína um þátttöku í útboði vegna flutninga og vélarvinnu í móttökustöð Sorpu i Gufunesi. Samþykkt var að breyta Vélamiðstöðinni í hlutafélag þann 10. september 2002. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins létu þá bóka í borgarráði: „Að gefnu tilefni árétta borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks nauðsyn þess að tafarlaust verði mótaðar reglur um innkaup á vegum fyrirtækja og byggðasamlaga í eigu eða með aðild Reykjavíkurborgar. Jafnframt er nauðsynlegt að móta með skýrum hætti hvort Vélamiðstöðin ehf. skuli keppa um verkefni á almennum markaði.“ Í tillögunni segir að það sé gangrýnisvert að stjórn Vélamiðstöðvarinnar ehf. hafi ekki gert borgarráði grein fyrir þeim áformum sínum um að færa út kvíarnar á hinum almenna samkeppnismarkaði, ekki síst í ljósi þeirrar umræðu sem fram fór í borgarráði þegar samþykkt var að breyta Vélamiðstöðinni í hlutafélag. Vélamiðstöð hefur með þátttöku sinni í nýlegu útboði Sorpu bs. hafið samkeppni á almennum markaði við fyrirtæki í einkaeigu að því er segir í tillögunni. Það sé því eðlilegast að hugað verði að því sem fyrst að selja fyrirtækið til einkaaðila þannig að öll fyrirtæki á þessum markaði sitji við sama borð við að bjóða í þjónustu fyrir Reykjavíkurborg eða fyrirtæki og stofnanir hennar, segir að lokum í tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins..
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fleiri fréttir Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Sjá meira