Slagsmál á Valsmóti 5. september 2004 00:01
KR og ÍR léku til úrslita á hraðmóti Vals í körfubolta í gærkvöldi. Leikurinn leystist á köflum upp í tóma þvælu og létu ÍR-ingar skapið hlaupa með sig í gönur. KR byrjaði betur og náði fljótlega yfirhöndinni í fyrsta leikhluta. ÍR-ingar voru aldrei langt undan og náðu góðum spretti undir lok fyrri hálfsleiks. Staðan í leikhléi var 29-28 fyrir KR. Í þriðja fjórðung skoraði KR 15 stig gegn 8 stigum ÍR-inga og lagði það grunninn að sigrinum. Í lokafjórðungnum létu ÍR-ingar mótlætið fara í taugarnar á sér og voru þeir Ómar Sævarsson og Ásgeir Hlöðversson reknir af velli. Allir stóru menn ÍR fengu allir 5 villur og eina tæknivillu á mann. KR náði 16 stiga forskoti um miðjan leikhlutann og voru lokatölur 67-53. Stigahæstir hjá ÍR voru Ólafur Sigurðsson og Ólafur Þórisson en Lárus Jónsson fór fyrir liði KR-inga með 16 stig og gaf að auki fimm stoðsendingar. Herbert Arnarson, þjálfari KR-inga, var ánægður með leik sinna manna. "Leikurinn leystist upp í töluverðan æsing á tímabili og sérstaklega síðustu 5 mínúturnar fyrir hlé," sagði Herbert. "ÍR-ingar lögðu sig meira fram og uppskáru eftir því. Við vildum sýna það að við líðum ekki að hitt liðið leggi sig meira fram en við. Við komum tilbaka og héldum fengnum hlut eftir það". Mótið gefur KR-ingum byr undir báða vængi enda nýjir leikmenn að standa sig með prýði. Herbert hefur þó allan varann á því. "Þetta mót er ekki alveg að marka enda landsliðsmenn ekki með og sömuleiðis fáir erlendir leikmenn. En þetta er ágætt til að vita hvar við stöndum og kærkomin úrslit fyrir okkur. Ég held að fáir reikni með því að KR og ÍR leiki til úrslita í vor enda mótið ekki partur af alvörunni sem byrjar í október".
Íþróttir Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Fótbolti Fleiri fréttir „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sjá meira