Hafnar hugmyndum um 75% þátttöku 28. júní 2004 00:01
Nefnd hinna vísu manna hafnar hugmyndum um aukinn meirihluta og 75% lágmarksþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin svo atkvæðagreiðslan teljist gild. Nefndin telur að leita beri hóflegri leiða. Ríkisstjórnin skipaði starfshóp þriggja hæstaréttarlögmanna til að fara yfir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu og hvaða skilyrði ætti að setja þar. Nefndin kynnti niðurstöður sínar nú rétt fyrir hádegið. Að sögn Karls Axelssonar, formanns nefndarinnar, var um nokkuð flókið mál að ræða enda engin klár fordæmi sem hægt var að vísa í. Karl segir að nefndin hafi orðið sammála um að eðlilegt væri að setja einhver skilyrði varðandi afl atkvæða og kosningaþátttöku. Varðandi framkvæmd kosninganna segir Karl að líta megi til laga um alþingiskosningar og forsetakosningar. Hann segir að nefndin hafi talið eðlilegt að setja almennar reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur fremur en að búa til sérstæk lög vegna fyrirhugaðarar þjóðaratkvæðagreiðslu sem væntanlega fer fram í ágúst. Þá bendir Karl á að ef fjölmiðlalögin verða felld í þjóðaratkvæðagreiðslunni, eigi alveg eftir að skoða hvernig undið verður ofan af því að lögin hafa þegar tekið gildi og haft áhrif sem slík. Fjallað verður ítarlega um þetta mál í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hægt er að hlusta á fréttina og brot úr viðtali við Karl Axelsson með því að smella á myndina af hátalaranum við hlið fréttarinnar í fréttayfirlitinu. Hægt er að lesa skýrsluna í heild með því að smella á þenna hlekk: http://www.forsaetisraduneyti.is/media/Skyrslur/Skyrsla_thjodaratkvaedi_DOC.doc
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira