Sport

Íþróttafréttir á Bylgjunni

Forráðamenn ítalska landsliðsins í knattspyrnu og sumir leikmenn Ítala telja að um samsæri hafi verið að ræða hjá Dönum og Svíum á Evrópumótinu í gærkvöld. Danir og Svíar gerðu 2-2 jafntefli sem þýddi að bæði lið fóru áfram en Ítalir sátu eftir með sárt ennið þrátt fyrir 2-1 sigur gegn Búlgörum. Antonio Cassano tryggði Ítölum sigur á 94. mínútu en í þann mund var flautað til leiksloka í hinum leiknum. Matthias Jonsson jafnaði fyrir Svía á 88. mínútu eftir skelfileg mistök Thomasar Sörensens í markinu. Forseti Ítalska knattspyrnusambandsins, Franco Carraro, sagði eftir leikina í gær: „Það er alveg ljóst að eins og leikur Dana og Svía þróaðist þá stefndu liðin á jafntefli, en það er auðvitað erfitt að sanna það". Gianlugi Buffon tók í sama streng: „Einhver á að skammast sín og það eru ekki við". Fæstir stuðningsmanna ítalska liðsins taka undir þessi orð og kenna lélegum leik liðsins og þjálfaranum, Giovanni Trappatoni, um hvernig fór. Morten Olsen, þjálfari Dana sagði það vera fáránlegt að tala um samsæri og flestir eru á því og segja einfaldlega að ítalska liðið hafi ekki átt skilið að fara áfram. Dagblöðin í Danmörku og Svíþjóð eru ánægð með úrslitin. Dagens Nyheter segir í fyrirsögn: „Ítalska martröðin varð að veruleika". Svenska dagbladet sagði: „Töfrandi úrslit á töfrandi kvöldi" og annað blað sagði „Norræni draumurinn rættist". Danir mæta Tékkum í átta liða úrslitum en Svíar mæta Hollendingum, Þjóðverjum eða Lettum. Holland mætir Lettum í kvöld í beinni útsendingu á Sýn og hefst upphitun klukkan 18. Þjóðverjar mæta Tékkum og með sigri komast þeir í átta liða úrslitin. Þrír leikir voru í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í gærkvöld. KR skellti Breiðablik 4-1, Valur sigraði Fjölni 3-0 og Stjarnan og FH gerðu 1-1 jafntefli. Valur er á toppnum með 15 stig eftir fimm umferðir, ÍBV er í öðru sæti með ellefu og KR í þriðja sæti með tíu. FH og Fjölnir eru með eitt stig í tveimur neðstu sætunum. Sjöundu umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu lýkur í kvöld með fjórum hörkuleikjum. Efsta lið deildarinnar, Fylkir, sækir KA heim á Akureyri, Keflavík og Skagamenn eigast við í Bítlabænum, FH fær Grindavík í heimsókn í Kaplakrika og Víkingur tekur á móti ÍBV í Víkinni. Flautað verður til leiks klukkan 19:15. Leikjunum verður gerð góð skil í Olíssporti á Sýn í kvöld klukkan 22. Kjartan Henry Finnbogason KR og Atli Jóhannsson ÍBV voru í gær dæmdir í eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda í Landsbankadeildinni í knattspyrnu. Þeir geta þó leikið með liðum sínum í kvöld en bannið tekur gildi í áttundu umferð. Nú er ljóst að norræna meistaradeildin í handbolta byrjar í janúar. Alls taka 24 lið þátt í keppninni. Norðmenn, Svíar og Danir senda 7 lið hver þjóð í keppnina en Finnar þrjú. Íslendingar eiga enga fulltrúa í keppninni. Liðunum 24 verður skipt niður í 6 fjögurra liða riðla. Sigurvegararnir riðlanna komast í 8-liða úrslit auk tveggja liða með bestan árangur í öðru sæti. Charlotte Bobcats, nýja liðið í NBA-deildinni í körfuknattleik, valdi í gær 19 leikmenn til félagsins fyrir næsta keppnistímabil. Allt eru þetta leikmenn sem önnur lið í deildinni vildu ekki veljda. NBA nýliðavalið fer fram á morgun. Charlotte er með annan valrétt í valinu. Miðnætur- og Ólympíuhlaupið fer fram í Laugardalnum í Reykjavík í kvöld og hefst klukkan 21. Vegalengdir sem boðið er upp á eru 3 km skemmtiskokk og 5 og 10 km með tímatöku fyrir þá sem vilja. Hægt er að skrá sig á vefnum á www.hlaup.is eða niðri í Laugardal .



Fleiri fréttir

Sjá meira


×