Þýskaland og Lettland skildu jöfn 19. júní 2004 00:01
Möguleikar Þjóðverja á að komast í 8-liða úrslit EM minnkuðu talsvert í kvöld þegar liðið náði aðeins markalausu jafntefli gegn baráttuglöðum Lettum, sem hlutu að launum sitt fyrsta stig á stórmóti í knattspyrnu. Þýska liðinu dugir nú nánast ekkert minna en sigur í sínum síðasta leik gegn Tékkum ef þeir ætla sér að komast upp úr riðlinum, því Hollendingar eru fyrirfram taldir mun líklegri til sigurs gegn Lettum í sínum lokaleik. Í tilþrifalitlum fyrri hálfleik voru Lettar ívið betri aðilinn og sýndu að það er engin tilviljun að þeir séu komnir í þessa lokakeppni EM. Liðið var mjög agað og vel skipulagt aftarlega og beitti stórhættulegum skyndisóknum þar sem Oliver Kahn þurfti í nokkur skipti að taka á honum stóra sínum. Eftir því sem leið á síðari hálfleik jókst pressa Þjóðverja án þess þó að þeir hafi náð að skapa sér nein afgerandi marktækifæri. Rudi Völler, þjálfari Þýskalands, sagði það enga skömm að ná aðeins jafntefli gegn Lettlandi. „Ég get ekki kennt leikmönnunum um. Þeir gerðu allt sem þeir gátu. Lettar spiluðu frábæra vörn sem við náðum ekki að brjóta niður. Nú verðum við bara að vinna Tékka, svo einfalt er það," sagði Völler. Sjálfur forseti Lettlands, Vaira Vike-Freiberga, var í skýjunum með þetta fyrsta stig sinnar þjóðar á stórmóti og kallaði leikmenn liðsins„Gulldrengi". „Þetta sannar hversu gott lið við eigum og við eigum ennþá möguleika á að komast upp úr riðlinum," sagði forsetinn. Þjálfarinn Aleksandrs Starkovs var einnig hrærður. „Ég er svo stoltur af mínum mönnum. Við rituðum okkur í sögubækurnar í kvöld," sagði hann.
Íslenski boltinn Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Fleiri fréttir Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Dagskráin í dag: Risamót í golfi, bestu pílukastarar heims og Formúla 1 Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sjá meira