Sport

Þýskaland og Lettland skildu jöfn

Möguleikar Þjóðverja á að komast í 8-liða úrslit EM minnkuðu talsvert í kvöld þegar liðið náði aðeins markalausu jafntefli gegn baráttuglöðum Lettum, sem hlutu að launum sitt fyrsta stig á stórmóti í knattspyrnu. Þýska liðinu dugir nú nánast ekkert minna en sigur í sínum síðasta leik gegn Tékkum ef þeir ætla sér að komast upp úr riðlinum, því Hollendingar eru fyrirfram taldir mun líklegri til sigurs gegn Lettum í sínum lokaleik. Í tilþrifalitlum fyrri hálfleik voru Lettar ívið betri aðilinn og sýndu að það er engin tilviljun að þeir séu komnir í þessa lokakeppni EM. Liðið var mjög agað og vel skipulagt aftarlega og beitti stórhættulegum skyndisóknum þar sem Oliver Kahn þurfti í nokkur skipti að taka á honum stóra sínum. Eftir því sem leið á síðari hálfleik jókst pressa Þjóðverja án þess þó að þeir hafi náð að skapa sér nein afgerandi marktækifæri. Rudi Völler, þjálfari Þýskalands, sagði það enga skömm að ná aðeins jafntefli gegn Lettlandi. „Ég get ekki kennt leikmönnunum um. Þeir gerðu allt sem þeir gátu. Lettar spiluðu frábæra vörn sem við náðum ekki að brjóta niður. Nú verðum við bara að vinna Tékka, svo einfalt er það," sagði Völler. Sjálfur forseti Lettlands, Vaira Vike-Freiberga, var í skýjunum með þetta fyrsta stig sinnar þjóðar á stórmóti og kallaði leikmenn liðsins„Gulldrengi". „Þetta sannar hversu gott lið við eigum og við eigum ennþá möguleika á að komast upp úr riðlinum," sagði forsetinn. Þjálfarinn Aleksandrs Starkovs var einnig hrærður. „Ég er svo stoltur af mínum mönnum. Við rituðum okkur í sögubækurnar í kvöld," sagði hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×