Kvikmyndamiðstöðin braut reglugerð 13. júní 2004 00:01
Menntamálaráðuneytið hefur fellt úrskurð Kvikmyndamiðstöðvar Íslands um að neita kvikmyndafyrirtækinu Passport um kynningarstyrk vegna myndarinnar Þriðja nafnið úr gildi. Kvikmyndamiðstöðinni er gert að taka málið upp að nýju þar sem ekkert formlegt mat fór fram áður en ákveðið var að hafna umsókninni. Einar Þór Gunnlaugsson, framleiðandi og eigandi fyrirtækisins Passport, telur að gagnrýni hans á Kvikmyndamiðstöðina hafi ráðið úrslitum um að hann fékk ekki styrkinn sem og styrk um eftirvinnslu. Hann segir úrskurðinn áfellisdóm yfir Laufeyju Guðjónsdóttur forstöðumanni og Hirti Grétarssyni, framleiðslustjóra Kvikmyndamiðstöðvarinnar, þar sem bæði voru í nefnd sem vann að gerð reglugerðar fyrir Kvikmyndamiðstöðina. Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, segir ákvörðun Kvikmyndamiðstöðvarinnar ekki hafa verið byggða á gagnrýni Einars. "Þegar það er takmarkaður sjóður og margir umsækjendur með verðugar umsóknir þá, því miður, veit maður að margir verða óánægðir og gagnrýna," segir Laufey. "Það er rétt að kvikmyndin fékk ekki skriflega umsögn kvikmyndaráðgjafa. Við fengum mjög margar umsóknir og margir sem biðu svara, meðal annarra Einar." Laufey segir það hafa verið mistök að ekki hafi farið fram formlegt mat á umsókninni. "Við viljum ekki meina að það hafi að minnsta kosti verið viljandi. Það lá ekki fyrir að myndin væri tilbúin, " segir Laufey en það sé skilyrði fyrir kynningarstyrk. Hratt hafi hins vegar verið unnið. "Við vitum það núna að hún er sannarlega tibúin, myndin, og okkur ekkert að vanbúnaði að fjalla um umsóknina aftur." Einar segir mikilvægt að menntamálaráðuneytið endurskoði reglugerðina og geri hana ítarlegri til að forðast svona uppákomur. "Kvikmyndamiðstöð Íslands verður að vera hafin yfir allan grun, að þar sé heiðarlega og eðlilega að mati umsókna staðið því heil atvinnugrein stólar á þessa stofnun."
Fréttir Innlent Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira