Mjög skýr markmið Reagans 13. júní 2004 00:01 "
Það var mér alveg ljóst í þessum samtölum að það var ekki tilviljun ein að hann hafði náð þessari lýðhylli og þessum áhrifum í Bandaríkjunum," segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, um Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem hann ræddi við í opinberri heimsókn til Bandaríkjanna árið 1988. Þorsteinn var eini íslenski forsætisráðherrann sem hitti Bandaríkjaforseta að máli í Hvíta húsinu. "Hann hafði greinilega mjög skýr markmið. Var ef til vill ekki best allra manna að sér í smáatriðum og hafði litla miða í lófanum til að styðjast við þegar kom að slíkum hlutum en hans hugmyndafræði og markmið voru greinilega mjög skýr," segir Þorsteinn um Reagan. "Þó að endalok kalda stríðsins hafi ef til vill verið spurning um tíma er engum vafa undirorpið að hans staðfesta og hans klára hugsun í þeim efnum réði mestu um hversu fljótt dró til loka kalda stríðsins." Á fundi sínum ræddu Þorsteinn og Reagan fyrst og fremst stöðu varnarliðsins og varnarsamstarfið, en einnig möguleika á afnámi vegabréfsáritunar sem varð veruleiki upp úr þessari heimsókn. "Reagan lagði mjög ríka áherslu á að ræða stöðu alþjóðamála," segir Þorsteinn og rifjar upp að meðal þeirra sem sátu fund með sér og Reagan var Colin Powell, þáverandi þjóðaröryggisráðgjafi og núverandi utanríkisráðherra.
Fréttir Innlent Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira