Erlent

Hinn egypski Múhammeð handtekinn

Ítalska lögreglan hefur handtekið tvo menn, grunaða um aðild að hryðjuverkaárásunum á lestarkerfi Madrídar ellefta mars síðastliðinn. Annar þeirra gengur undir nafninu Hinn egypski Múhammeð og er talinn einn af höfuðpaurum árásanna. Þeir voru handteknir í Mílanó í gærkvöld í kjölfar þriggja mánaða rannsóknar leyniþjónustu og hryðjuverkasveitar ítölsku lögreglunnar. Er hún hluti af sameiginlegum hryðjuverkaaðgerðum Spánverja, Frakka, Ítala og Belga, sem hófust eftir tilræðið í Madríd. Dagblaðið La Repubblica segir að mennirnir tveir hafi ráðgert hryðjuverk á Ítalíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×