
Innlent
Halldór hittir Raffarin
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra mun á mánudag eiga fund með Jean-Paul Raffarin,forsætisráðherra Frakklands. Sama dag mun Halldór verða viðstaddur opnun viðamikillar Íslandskynningar á sviði vísinda- og menningar. Fundur Halldórs og Raffarins verður í Hotel Matignon, embættisbústað franska forsætisráðherrans. Þess má geta að kosningar eru til öldungadeildar franska þingsins á sunnudag og er Raffarin í framboði. Auk Halldórs verða tveir aðrir ráðherrar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Sturla Böðvarsson viðstaddir opnun kynningarinnar.