Gráir fyrir járnum 24. október 2004 00:01
Íslensku friðargæsluliðarnir í Kabúl eru gráir fyrir járnum þegar þeir fara út af herbækisstöðinni við flugvöllinn. Þá eru þeir með riffla og skammbyssur og klæddir skotheldum vestum. Líðan friðargæsluliðana sem særðust í sjálfsmorðsárás í gær er sögð góð. Auk sjálfsvígsárásarmannsins fórust tveir í hryðjuverkaárásinni í gær: ung bandarísk kona sem starfaði sem túlkur og ellefu ára gömul afgönsk stúlka. Íslensku friðargæsluliðarnir voru með hjálma og í skotheldum vestum sem kunna að hafa bjargað lífi þeirra. Að auki voru bílar þeirra brynvarðir, og þó var annar þeirra óökufær eftir árásina. Samkvæmt fréttaskeytum frá alþjóðlegum fréttastofum voru það þrír íslenskir hermenn sem særðust í árásinni, þar af einn alvarlega. Talsmenn utanríkisráðuneytisins segja ekkert til í þessu og að allir séu friðargæsluliðarnir við góða heilsu á þýsku hersjúkrahúsi. Friðargæsluliðarnir tilheyra hersveitum NATO í Afganistan og eru búnir vopnum þegar þeir fara út af herstöðinni við flugvöllinn í Kabúl. Samkvæmt reglum NATO eru þeir með riffla og skammbyssur, auk þess að vera klæddir skotheldum vestum og með hjálma. Því er spurning hversu auðvelt sé að greina á milli þessarra íslensku friðargæsluliða og annarra hermanna í landinu. Hallgrímur Sigurðsson, ofursti í NATO-liðinu og yfirmaður flugvallarins í Kabúl, er yfirmaður einnar af u.þ.b. tíu herbækistöðvum í borginni. Auk íslensku friðargæsluliðanna sextán eru þar mörg hundruð hermenn frá öðrum ríkjum en um 1600 manns búa á stöðinni sem er við flugvöllinn. Hallgrímur er að auki yfirmaður alls starfsliðs flugvallarins, frá hlaðmönnum og flugumferðarstjórum til vopnaðra öryggissveita. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst fréttastofunni ekki að fá viðtal við Hallgrím í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Sjá meira